Lífið

All You Need Is Love

Meðfylgjandi má sjá prúðbúna gesti í brúðkaupi Bítilsins Paul McCartney, 69 ára, og Nancy Shevell, 51 árs, sem fór fram í Lundúnum í gær, sunnudag.

Á myndunum má sjá Barböru Walters, James og Stellu McCartney, Ringo Starr, Ronnie Wood og Twiggy.

Paul giftist Lindu McCartney árið 1969 en hún lést langt fyrir aldur fram árið 1998 úr krabbameini. Hann giftist síðan Heather Mills árið 2002 en þau skildu árið 2008.  Stuttu síðar kynntist hann konunni sem hann játaðist í gær, Nancy, en hún var áður gift Bruce Blakeman.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.