Lífið

Hversu vont er að fá egg í hausinn?

Handboltahetjan Logi Geirsson og tónlistarmaðurinn Davíð Berndsen verða gestir Týndu kynslóðarinnar sem verður í opinni dagskrá Stöðvar 2 klukkan 19.20 í kvöld.

Í þættinum gera Björn Bragi og Nilli meðal annars tilraun á því hversu vont það er að fá egg í hausinn, en mikil umræða skapaðist um það eftir mótmælin á Austurvelli á dögunum.

Logi tekur líka lagið í stúdíóinu hjá Berndsen og Berndsen kíkir á handboltaæfingu hjá Loga. Þá fer Þórunn Antonía á hjólabretti með Adda Intro og rifjað er upp þegar Nilli var uppgötvaður á Airwaves fyrir réttu ári síðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.