Lífið

Heyrðu hann nældi í aðal gelluna í Hollywood

myndir/cover media
Drive stjarnan Ryan Gosling, 30 ára, og leikkonan Eva Mendes, 37 ára, kysstust í bílnum hans eftir að þau keyptu sér ískaffi í Los Angeles í gær. Ryan var brugðið þegar hann áttaði sig á því að kossarnir voru myndaðir en Evu var slétt sama og strauk vanga hans alsæl eins og sjá má á myndunum.

Í síðustu viku fór af stað orðrómur um að ástin hefði kviknað hjá stjörnunum eftir að sást til þeirra leiðast og kyssast í Disneylandi.

Ryan sagði í nýlegu viðtali að ástarsambönd í Hollywood væru að hans mati dauðadæmd og að hann væri sáttur við að eiga í traustu ástarsambandi við starfið sitt eins og um eiginkonu hans væri að ræða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.