Íslenski boltinn

Þorlákur Árnason: Fyrst og fremst viðurkenning fyrir liðið sjálft

Stefán Árni Pálsson skrifar
„Þessi viðurkenning er fyrst og fremst fyrir liðið sjálft," sagði Þorlákur Árnason, þjálfari Stjörnunnar, en hann var í dag valinn besti þjálfari umferða 10-18 í Pepsi-deild kvenna.

„Þetta skiptir mig persónulega engu máli, en við vorum klárlega besta liðið í sumar og því kannski eðlilegt að þjálfarinn fái þá viðurkenningu".

„Þetta kom mér ekkert gríðarlega á óvart, við unnum alla níu leikina í seinni umferðinni".

„Þetta er búið að vera algjört rugl tímabil og framar okkar björtustu vonum".




Fleiri fréttir

Sjá meira


×