Ætlar að tilkynna ákvörðun sína á morgun Jón Hákon Halldórsson skrifar 22. ágúst 2011 15:51 Guðmundur Steingrímsson ætlar að greina frá því á morgun hvað hann hyggst fyrir. „
Ég er búinn að ákveða að segja á morgun hvað ég hafði hugsað mér að gera og vil aðeins hafa stjórn á þeirri atburðarrás," segir Guðmundur Steingrímsson, þingmaður Framsóknarflokksins, í samtali við Vísi. Hann vill því hvorki játa því né neita hvort hann muni stofna nýjan stjórnmálaflokk eins og greint hefur verið frá í dag. Fréttavefur DV sagðist í dag hafa heimildir fyrir því að Guðmundur myndi tilkynna um stofnun nýs flokks á morgun. Heimildir Vísis herma það sama. „Ég sagði fyrr í sumar þegar Ásmundur kom til liðs við Framsóknarflokkinn að ég ætlaði að taka mér góðan tíma í að hugsa hvað maður ætlaði að gera pólitískt, því að mér fyndist eins og flokkurinn væri farinn eitthvert sem ég ætti ekki samleið með. Og ég er að nálgast niðurstöðu í því," segir Guðmundur í samtali við Vísi. Guðmundur segist hafa rætt málin við Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann flokksins í gegnum tíðina. Hann sagði samt ekki hvort hann hefði talað við hann nýlega um málin. „En það á öllum að vera ljóst að ég hef verið á annarri línu," segir Guðmundur. Þegar Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, Sigurður Ingi Jóhannsson, varaformaður þingflokksins, og Siv Friðleifsdóttir þingmaður voru spurð út í málið í dag sögðust þau öll koma af fjöllum.
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Enn má búast við slyddu eða snjókomu Veður „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent Fleiri fréttir Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Sjá meira