Þurfum að þrífa upp eftir okkur sjálf og jafnvel næsta mann 11. júlí 2011 15:28 Rusl í borginni. „
Umgengni Íslendinga um helgar eru líklega einsdæmi í heiminum," segir Jakob Frímann Magnússon, miðborgarstjóri, spurður út í umgengni í miðborginni, en ljósmyndari fréttastofu, Pjetur Sigurðsson, tók meðfylgjandi myndir í miðborginni í dag. Þar má sjá pappadisk inn í runna, plastgaffal á stéttinni og glerbrot á víð og dreif. Jakob segir tugir manna vinna við það eitt að hreinsa til í miðborginni eftir helgar en nú hafi vikan lengst með betra veðri, „og því er gleðskapurinn farinn að lengjast," segir Jakob.Jakob Frímann Magnússon, miðborgarstjóri.Hann bendir á að borgin sé búin að skera mikið niður framlög til hreinsunar og skyldrar grunnþjónustu. Hann hvetur því borgarbúa til þess að ganga betur um. „Það þarf ekki meira en einn sóða sem skilur eftir sig rusl. Nú þurfum við borgarbúar að stilla okkur saman á meðan við förum í gegnum efnahagsþrengingar og þrífa upp eftir okkur. Og jafnvel náungann sem er ekki jafn vel upp alinn og við hin," segir Jakob en starfsmenn borgarinnar hafa undanfarið þrifið Austurstrætið með háþrýstidælum til þess að ná tyggjóklessum af stéttinni.„Gatan var eiginlega orðin hvít," segir Jakob sem hvetur fólk til þess að henda tyggjóinu frekar í ruslið, enda er það ekki ókeypis að þrífa klessurnar upp. „Hingað til hefur Reykjavík verið nokkurskonar baðmullarborg sem hefur búið við súperþjónustu. Svo er ekki lengur," segir Jakob og bætir við: „Við þurfum að taka okkur taki svo borgin breytist ekki í öskuhaug."
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Innlent Fleiri fréttir Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Sjá meira