Íslenski boltinn

Haraldur: Það vantaði herslumuninn

Stefán Árni Pálsson á Vodafonevellinum skrifar
„Ég er enginn hetja, það eru 11 menn inná vellinum í einu og við stóðum okkur allir vel í kvöld, en það vantaði herslumuninn,“ sagði Haraldur Björnsson, leikmaður Vals, eftir leikinn í kvöld.

„Við fengum okkar færi í þessum leik og hefðum átt að nýta þau betur. Það sem fór vel í kvöld var að liðið var að spila boltanum vel útúr vörninni sem var mikilvægt þar sem við vissum að þeir myndu pressa okkur hátt".

„Það er góð tilfinning að vera í toppbaráttunni og við ætlum okkur að vera þar“.


Tengdar fréttir

Umfjöllun: Valsmenn náðu ekki að endurheimta toppsætið

Valur og Stjarnan gerðu 1-1 jafntefli í 10.umferð Pepsi-deildar karla í kvöld á Hlíðarenda. Valsmenn áttu möguleika á því að komast á toppinn í deildinni en Stjörnumenn komu í veg fyrir það og jafntefli niðurstaðan. Stjarnan var mun sterkari aðilinn í síðari hálfleiknum og Valsmenn voru heppnir að fá stig úr leiknum, en markvörður þeirra Haraldur Björnsson átti frábæran leik og bjargaði þeim oft á tíðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×