Lífið

Davíð fékk vespuna skemmda til baka

Lögreglan í Kópavogi hafði samband við móður Davíðs og kom vespunni til hans í dag.
Lögreglan í Kópavogi hafði samband við móður Davíðs og kom vespunni til hans í dag. MYND/Bryndís Erna
Vespan hans Davíðs, 13 ára, sem var stolið aðfaranótt sunnudags fyrir utan heimili fjölskyldu hans í Asparlundi í Garðbæ, er komin í leitirnar.

Við báðum lesendur Vísis að aðstoða drenginn í dag við að finna farartækið sem hann borgaði að fullu sjálfur.

„Vespan fannst í Írabakka. Lögreglan í Kópavogi kom með hana heim áðan. Lögreglumaðurinn var búinn að sjá fréttina á Visir.is í dag og hringdi í mig. Ég þakka kærlega fyrir þetta," sagði Bryndis Erna Thoroddsen móðir Davíðs sem hefur tekið gleði sína á ný.

Var vespan í góðu ásigkomulagi? „Nei það var brotið handfangið þar sem maður snýr til að komast áfram og líka brotið smá aftan á. Hún þarf að fara í viðgerð til að láta laga það," svaraði Bryndís Erna.- elly@365.is


Tengdar fréttir

Hjálpum Davíð að finna vespuna sína

"Vespan hans Davíðs var læst fyrir framan eldhúsgluggann okkar í hleðslu og á sunnudeginum um hádegið kíkti ég út. Þá hélt ég að Davíð hefði farið á vespunni til pabba síns þannig að ég var ekkert að hafa áhyggjur af því," segir Bryndís Erna Thoroddsen móðir þrettán ára drengs, Davíðs, sem saknar vespunnar sinnar sárt en henni var stolið aðfaranótt sunnudags í Asparlundi í Garðabæ. Davíð var að leika í leikhúsinu, í Skoppu og Skrýtlu, og vann sér inn 150 þúsund krónur. Hann keypti sér vespuna í október í fyrra fyrir launin, ofsalega stoltur," útskýrir Bryndís Erna. Hún er af gerðinni Zuzuki, aðallega hvít á litin með smá gráu og það er bara einn spegill á henni en flestar eru með tveimur speglum. Já já við erum búin að keyra út um allt og hann er búinn að tala við krakkana í hverfinu," segir Bryndís spurð hvort þau hafi leitað að vespunni í í hverfinu. Í meðfylgjandi myndasafni má sjá skutluna hans Davíðs. Vinsamlegast hafið augun opin fyrir vespunni hans Davíðs. Sími Bryndísar er 6973912. Allar ábendingar vel þegnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.