Ólögmæt ríkisaðstoð til fjármálastofnana á Íslandi 29. júní 2011 13:59 Íbúðalánasjóður hefur aðsetur í Höfðaborg, Borgartúni.
Eftirlitsstofnun EFTA tók í dag ákvörðun þess efnis að aðstoðarkerfi fasteignaveðlána íbúðalánasjóðs feli í sér ólögmæta ríkisaðstoð til fjármálastofanana á Íslandi. Í fréttatilkynningu um málið á vef Eftirlitsstofnunarinnar segir að vegna mikilla raskana á alþjóðlegum fjármálamörkuðum hafi íslenskar fjármálastofnanir staðið frammi fyrir lausafjárskorti og hafi, til að mæta þeim vanda, meðal annars heimilað íbúðalánasjóði að kaupa fasteignaveðlán af fjármálastofnunum. Eftir skilgreiningu Eftirlitsstofnunarinnar felur aðstoðarkerfi fasteignaveðlána í sér varanleg skipti á eignum þar sem fjármálastofnanir taka á móti skuldabréfum íbúðalánasjóðs í skiptum fyrir fasteignaveðlán sem eru yfirfærð til sjóðsins. Þá segir í yfirlýsingunni: Við þær aðstæður sem voru á fjármálamörkuðum í kjölfar fjármálakreppunar er ólíklegt að einkafjárfestir hefði tekið þátt í sambærilegum eignaskiptum. Niðurstaða ESA er því sú að aðstoðarkerfi fasteignaveðlána gæti þar af leiðandi falið í sér ríkisaðstoð til fjármálastofnana. Að auki fellur aðstoðarkerfið ekki að leiðbeinandi reglum um ríkisaðstoð í tengslum við virðisrýrðar eignir, sem stofnunin innleiddi í kjölfar fjármálahrunsins. Vegna þessa fer ESA fram á að íslensk yfirvöld leggi niður aðstoðarkerfi fasteignaveðlána án tafar og geri nauðsynlegar ráðstafanir til að endurheimta ósamrýmanlega aðstoð eigi síðar en í lok október 2011. Einstaka styrkir sem hafa verið veittir vegna aðstoðarkerfisins geta hinsvegar samræmst áskilnaði EES samningsins uppfyllt þeir skilyrði sem sett eru í leiðbeinandi reglum í tengslum við virðisrýrðar eignir og þurfa þar af leiðandi ekki að vera endurheimtir. Í slíkum tilvikum þurfa íslensk stjórnvöld að leggja fram gögn sem sýna fram á að einstaka styrkir sem veittir hafa verið samkvæmt aðstoðarkerfinu hafi verið samrýmanlegir reglum um ríkisaðstoð.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Innlent Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Erlent Fleiri fréttir Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Sjá meira