Kviknaði í einu verslun Hofsóss í morgun 20. maí 2011 10:54 Hofsós. Mynd Feykir.
Eldur kom upp í verslunarhúsnæði KS á Hofsósi í Skagafirði í morgun en verslunin er eina verslunin á staðnum. Líkur eru á að eldurinn hafi komið upp einhvern tíma í nótt en hann hafi slokknað af sjálfu sér samkvæmt fréttavefnum Feykir.is. „Við teljum að eldurinn hafi komið upp í frystiskáp og síðan breiðst út um búðina. Það hefur verið töluverður eldur þarna en hann hefur síðan að líkindum koðnað niður af súrefnisskorti,“ segir Vernharð Guðnason, slökkviliðsstjóri á Sauðárkróki í samtali við Feyki. Að sögn Vernharðs kom starfsmaður til vinnu í morgun og varð var við reyk og mikla brunalykt þegar hann opnaði inn í búðina. „Starfsmaðurinn brást hárrétt við með því að loka strax aftur og hafa samband við 112,“ segir Vernharð. Allt innvols verslunarinnar er ónýtt og segir Vernharð ljóst að íbúar á Hofsósi þurfi að gera aðrar ráðstafanir til þess að versla í matinn. Ólafur Sigmarsson, hjá KS, segir að tjónið sé mikið. Húsið sé í lagi að utan en inni sé allt ónýtt. Aðspurður um hvort KS muni grípa til ráðstafana til að Hofsósingar geti nálgast nauðsynjavörur segir hann að það verði skoðað. „Við reynum að finna út úr því, en við getum svo sem ekki svarað neinu meira til um það að svo stöddu enda gerðist þetta bara í nótt eða morgun.“
Mest lesið Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Innlent „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun Innlent „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Fleiri fréttir Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Sjá meira