Lífið

Okkar eigin Osló tekur fram úr Roklandi

Yfir níu þúsund manns höfðu í byrjun vikunnar séð gamanmyndina Okkar eigin Osló í leikstjórn Reynis Lyngdal. Íslendingar virðast kunna vel að meta skondin samskipti þeirra Þorsteins Guðmundssonar og Brynhildar Guðjónsdóttur í aðalhlutverkunum enda hafa þeir flykkst á myndina síðan hún var frumsýnd 4. mars.

Ein önnur íslensk mynd er á lista yfir 25 aðsóknarmestu myndirnar á Íslandi, eða Rokland, með um 7.500 áhorfendur. Þrátt fyrir að Rokland hafi verið mun lengur í sýningum en Okkar eigin Osló, síðan 14. janúar, hefur sú síðarnefnda tekið fram úr Roklandi í aðsókn á tiltölulega skömmum tíma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.