Freistandi að klífa hraun 21. febrúar 2011 13:00 Krumma kynnir nýja leiktækjalínu. Mynd/Valli
Leikfangaframleiðandinn Krumma ehf. kynnti nýja vörulínu í Listasafni Reykjavíkur á föstudaginn. Nýja línan kallast Krumma Flow og sækir innblástur sinn til íslenskrar náttúru. "Leiktækin eru byggð á flæðinu í náttúrunni, skriðjöklum, vatni og rennandi hrauni, öllu sem hefur áhrif á mótun náttúrunnar," útskýrir Dóra Birna Sigurjónsdóttir, markaðsstjóri Krumma. "Það er alltaf freistandi að klifra í hrauni en það er ekki öruggt. Nú hefur okkur tekist að gera hraun bæði öruggt og skemmtilegt en leiktækin hafa áferð hrauns og eru jafn spennandi en foreldrarnir geta verið rólegir," segir Dóra og tekur fram að öll leiktæki Krumma séu öryggisvottuð af Dansk Technologisk Institute með tilliti til evrópsks öryggisstaðals EN1176.Köngulóarvefur spunninn í hrauni fangar ekki flugur heldur unglinga í vinalegt spjallumhverfi. Gaman er að klifra í vefnum, rúlla sér eða ganga.Leiktækin eru ætluð börnum frá sex ára aldri og upp úr. Aðalhönnuðir að baki línunnar eru Jenný Ruth Hrafnsdóttir, verkfræðingur og framkvæmdastjóri Krumma ehf., og Hrafn Ingimundarson, vélaverkfræðingur og eigandi fyrirtækisins. Leiktækin eru ætluð á opin svæði svo sem tjaldstæði, almenningsgarða og skólalóðir. Þau eru framleidd af Krumma en formin eru fræst út í þétt frauðplast sem síðan fær sérstaka yfirborðsmeðhöndlun til að líkja eftir áferð hrauns.Einingarnar eru stórar og bjóða upp á mikla möguleika í ævintýralegum leik."Þessi tæki líta ekki út fyrir að vera leiktæki og eru ólík öllu því sem við höfum gert áður," segir Dóra. "Við erum ánægð með útkomuna og sjáum fyrir okkur að þróa línuna áfram. Við eigum inni fullt af góðum hugmyndum." heida@frettabladid.isÍ hellinum er hægt að nýta skynfærin og skapa umhverfi sem örvar, með ljósi, skuggum, hlustun og hljóði.
Mest lesið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Sjá meira