Lífið

Frændur semja lag

Eins og fram kom í Fréttablaðinu í vikunni er önnur sólóplata tónlistarmannsins Daníels Ágústs væntanleg í byrjun mars.

Lagið Yeah Yeah Yeah fór í spilun á útvarpsstöðvum í gær, en Daníel naut aðstoðar frá frænda sínum við að semja lagið. Daníel er greinilega heppinn með skyldfólk því frændinn er enginn annar en tónlistarmaðurinn Barði Jóhannsson, best þekktur sem Barði í Bang Gang.

Hægt er að hlusta á lagið Yeah Yeah Yeah á síðunni Soundcloud.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.