Fullir fá aðra meðferð á bráðavakt 20. júlí 2011 07:00 Yfirlæknirinn á Vogi segir vandamál að ekki sé litið á áfengissýki sem alvörusjúkdóm og því sé lítið fé sett í forvarnir og meðferð. Fréttablaðið/Valli
Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, segir fyrirhugaða rannsókn á tengslum áfengissýki og dánarmeina afar mikilvæga. Persónuvernd hafnar að leyfa rannsóknina þar til betur liggur fyrir hvernig tryggja eigi öryggi viðkvæmra upplýsinga um einstaklinga sem fengu meðferð við áfengissýki. „Þetta er hið besta mál,“ segir Þórarinn um rannsóknina sem tveir háskólanemar hyggjast vinna undir handleiðslu og á ábyrgð Vilhjálms Rafnssonar hjá Rannsóknarstofu í heilbrigðisfræði. Nota á sjúkraskrár Vogs frá árinu 1980 og bera saman við dánarmeinaskrá Hagstofunnar. Þórarinn telur rannsóknina ekki aðeins geta hnykkt á því að líflíkur áfengissjúklinga minnki heldur muni upplýsingarnar gagnast bæði sjúklingunum og heilsugæslunni til að vera á varðbergi. Oft sé tekið á annan hátt á drukknu fólki og þeim sem séu undir áhrifum fíkniefna þegar þeir koma á slysavarðstofuna. „Vilhjálmur hefur sýnt fram á að lífslíkur þessa fólks eru mjög lágar. Það er í meiri hættu á að deyja á næstu tíu árum heldur en ef það kæmi á bráðamóttöku með alvarlega sjúkdóma,“ segir Þórarinn. Sjúkraskrár Vogs hafa nú þegar verið notaðar til erfðarannsókna með heimild Persónuverndar að sögn Þórarins. „Það er allt háð ströngum leyfum og við höfum alltaf reynt að fara mjög varlega með þessi gögn hjá okkur,“ segir yfirlæknirinn. - gar
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Sjá meira