Lífið

Mamma Lindsay tjáir sig um dótturina

Dina Lohan þykir opinská í nýrri bók um samband sitt og dóttur sinnar, Lindsay Lohan. Nordic Photos/getty
Dina Lohan þykir opinská í nýrri bók um samband sitt og dóttur sinnar, Lindsay Lohan. Nordic Photos/getty
Vefsíðan TMZ.com hefur birt kafla úr óútgefinni ævisögu Dinu Lohan sem er mamma bandarísku leikkonunnar Lindsay Lohan. Þar tjáir hún sig á opinskáan hátt um drykkjuvandræði dótturrinnar sem komst enn og aftur í kast við lögin fyrr í vikunni. Dina er ekki eini fjölskyldumeðlimur Lohan-fjölskyldunnar sem reynir að græða á ógæfu leikkonunnar því faðir hennar, Michael Lohan, hefur margoft komið í viðtöl og tjáð sig um vandræði stelpunnar, nú síðast hélt hann því fram að hún reykti krakk.

Engum dylst að Lindsay hefur átt í stökustu vandræðum með vímuefnin og Dina fer ekki dult með hverjum er um að kenna. „Hún var í slæmum félagsskap þar sem eiturlyf og áfengi voru daglegt brauð, hennar hegðun særði mig djúpt," segir Dina í bókinni en hún viðurkennir líka sjálf að kannski hafi hún gert mistök með því að senda Lohan eina til Hollywood á meðan hún sinnti uppeldi hinna barnanna sinna í New York „Ég fór að ráðum allra og leyfði henni að fara. Hvernig gat ég neitað henni um að upplifa sinn æðsta draum?" Í bókinni ræðir Dina einnig þá miklu erfiðleika sem fylgi því að vera umboðsmaður dóttur sinnar og móðir á sama tíma. Lindsay mun næsta mæta fyrir dómara þann 2.nóvember en þá kemur í ljós hvort hún hafi rofið skilorð sitt. Hún á þá yfir höfði sér átján mánaða fangelsisvist.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.