Arnar Gunnlaugs á bakvið Borgríki 24. október 2011 08:00 Arnar Gunnlaugsson er titlaður "executive producer“ kvikmyndarinnar Borgríkis sem sýnd er í íslenskum kvikmyndahúsum um þessar mundir. Hann var einnig maðurinn á bak við sjónvarpsþættina Tríó. „
Mitt hlutverk var ósköp lítið, fyrirtækið mitt setti bara smá pening í myndina á lokasprettinum þannig að hægt væri að klára hana og markaðssetja," segir knattspyrnukappinn og athafnamaðurinn Arnar Gunnlaugsson. Hann er svokallaður „executive producer" Borgríkis, kvikmyndarinnar sem sýnd er um þessar mundir í kvikmyndahúsum landsins og fengið hefur frábæra dóma víðast hvar. „Ég sá hana og var mjög hrifinn," segir Arnar sem var staddur á Flórída í fríi þegar Fréttablaðið náði tali af honum. Arnar hefur um árabil verið einn fræknasti knattspyrnumaður landsins og lék í sumar stórt hlutverk með liði Fram sem bjargaði sér á ævintýralegan hátt frá falli í Pepsi-deild karla. Hann hóf hins vegar að horfa til sjónvarps- og kvikmyndagerðar fyrir skömmu þegar hann stofnaði framleiðslufyrirtæki með kvikmyndagerðarmanninum Gesti Val Svanssyni, en saman gerðu þeir sjónvarpsþáttaröðina Tríó. Arnar upplýsir að skrif á þáttaröð númer tvö standi nú yfir. Knattspyrnukappinn viðurkennir að kvikmyndagerð og allt sem henni tengist sé mikið áhugamál hjá sér. Og hann sé að fikra sig áfram í þessum heimi. Frumraunin á hvíta tjaldinu lofar að minnsta kosti góðu því á dögunum var tilkynnt að James Mangold hygðist leikstýra endurgerðinni í Bandaríkjunum. Arnar hafði reyndar ekki heyrt af því en sagði það afar gleðilegar fréttir. „Það er bara æðislegt." - fgg
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Fullkominn kókos og chiagrautur að hætti Elísabetar Mettu Lífið Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út Sjá meira