Helmingur fráskilinna getur ekki rætt saman um börnin 24. október 2011 05:00 Þegar dómstóll dæmir sameiginlegt forræði er það góð lausn fyrir minnihluta foreldra. fréttablaðið/Valli
Helmingur fráskilinna foreldra sem dómstóll hefur dæmt sameiginlegt forræði getur ekki komið sér saman um neitt er varðar uppeldi barnanna. Þetta eru niðurstöður rannsóknar sem gerð var meðal danskra foreldra og Mai Heide Ottosen var í forsvari fyrir. Ottosen er sérfræðingur í skilnaðarrannsóknum hjá Félagsvísindastofnun Danmerkur og var stödd hér á landi í vikunni. Hún hélt fyrirlestur á málþingi á mánudaginn um heimild dómara til að dæma sameiginlega forsjá. „Árið 2007 varð það að lögum í Danmörku að þegar foreldrar deildu um forsjá barna, svo þeir þyrftu að fara fyrir dómara, væri það meginregla að dómarar dæmdu þeim sameiginlega forsjá – oft gegn vilja foreldranna. Þetta er auðvitað vandamál því þegar fólk fer fyrir dóm er það vegna þess að það getur ekki komið sér saman um neitt, og hvernig á þá að ganga að hafa sameiginlegt forræði?“ segir Ottosen. Hún fór því fyrir rannsókn á því hvernig þessi heimild dómara virkaði í raunveruleikanum. „Ég fékk upplýsingar um öll forræðismál ársins 2009. Þau voru um þrjú þúsund talsins. Svo hafði ég samband við um þúsund foreldra og spurði hvort þau vildu taka þátt í rannsókninni. Við tókum viðtal við þau stuttu eftir að dómsmálum lauk og síðan aftur ári seinna svo hægt væri að sjá áhrif til lengri tíma.“ Þrátt fyrir að meginreglan sé að dæma sameiginlega forsjá hafa dómarar heimild til að gera það ekki hafi þeir ástæður fyrir því, eins og þegar um misnotkun eða alvarleg vandamál er að ræða. „Niðurstöðurnar sýna að dómarar dæma sameiginlega forsjá í um helmingi tilvika.“ Foreldrar sem hafa sameiginlega forsjá eiga að geta komist að samkomulagi um öll mikilvæg málefni er varða barnið. „Í rannsókninni spurðum við foreldra hvort þeir héldu að þeir gætu komið sér saman um svona hluti. Tæpur helmingur svaraði neitandi, aðallega vegna þess að þeir höfðu lítil sem engin samskipti sín á milli eða vissu að ekki yrði samkomulag. Það var sama sagan þegar við spurðum hvort foreldrarnir gætu rætt hversdagslega hluti varðandi barnið, helmingurinn gat það ekki.“ Foreldrar sem höfðu sameiginlegt forræði gátu þó frekar unnið saman en foreldrar þar sem annað hafði forræði. Þar sem annað foreldrið hafði forræði var hlutfall þeirra sem ekki gátu unnið saman 75 til 80 prósent. Það stafaði aðallega af því að engin samskipti áttu sér stað. Litlar sem engar breytingar urðu á samskiptum foreldra eftir því sem frá leið. Til stendur að dönsku lögin verði endurskoðuð og munu rannsakendur hvetja stjórnmálamenn til að endurskoða lögin vel. „Ég var mjög gagnrýnin á þetta fyrirkomulag í byrjun. Eftir þessa rannsókn verð ég að viðurkenna að sumir foreldrar geta unnið saman jafnvel þótt þeir fari fyrir dómstóla. Þetta getur verið góð lausn fyrir þá foreldra, en það er minnihlutahópur.“ thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Notuðu gröfu til að brjótast inn í hraðbanka Innlent Vöknuðu með rottu upp í rúmi Innlent Töldu mann ætla að nota riffil með hljóðdeyfi í Gufunesmálinu Innlent „Það er hetja á Múlaborg“ Innlent Hringir daglega í brotaþola og lykilvitni Innlent „Ketamín-drottningin“ játar að hafa selt Perry ketamín Erlent Strætó hættir að bíða svo fólk þurfi ekki að bíða Innlent Ágóði af „Waka Waka“ sagður hafa endað í vasa Shakiru Erlent Flösku með bensíni kastað í hús í Hafnarfirði Innlent Lík hafi legið í námunda við aðra um klukkustundaskeið Innlent Fleiri fréttir Hraðari aflögun í Krýsuvík en áður Þess sem stýrir rannsókn að ákveða lengd símabanns fanga Fordæmisgefandi fyrir Ísland hvernig haldið verði á málum Úkraínu Sóttu skipverja á rússnesku skipi langt út á sjó og svo beint í Hrafntinnusker Kanna starfshætti, verklag og aðstæður Vöknuðu með rottu upp í rúmi Töldu mann ætla að nota riffil með hljóðdeyfi í Gufunesmálinu Notuðu gröfu til að brjótast inn í hraðbanka Flösku með bensíni kastað í hús í Hafnarfirði Strætó hættir að bíða svo fólk þurfi ekki að bíða Lík hafi legið í námunda við aðra um klukkustundaskeið „Réttu spilin og réttu vopnin“ „Það er hetja á Múlaborg“ Hringir daglega í brotaþola og lykilvitni Faðir á Múlaborg í áfalli, leiðtogafundur í Washington og símtöl sakbornings Stjórnvöld þurfi að bregðast við veðmálavandanum Jarðskjálfti fjórum kílómetrum frá höfuðborgarsvæðinu Lögregla leitar manns vegna rannsóknar Vesturbæjarlaug aftur lokað vegna viðgerðar Auglýsingaskilti lýsti upp allan Garðabæ Göngu- og hjólabrú við Dugguvog opnuð síðdegis í dag Tollum Evrópusambandsins frestað um óákveðinn tíma Aukin gæsla og breytt snið á Menningarnótt Eldur á Kleppsvegi Starfsmaðurinn undir sérstöku eftirliti í fyrra Grétar Br. Kristjánsson lögmaður látinn Ögurstund í Washington, spilavandi ungra karla og aukin gæsla á Menningarnótt Fólk verði oft samdauna sérkennilegum aðstæðum í vinnunni „Þetta er stórt mál og tekur auðvitað tíma“ Í gæsluvarðhaldi fram í september Sjá meira