Baðaði sig upp úr laxerolíu 7. október 2011 10:00 Sigrún Blomsterberg meiddist illa í náranum daginn fyrir prufur Dans Dans Dans og er mjög svekkt yfir að hafa ekki getað tekið þátt. Fréttablaðið/stefán „
Já, þetta fór ekki alveg eins og þetta átti að fara,“ segir Sigrún Blomsterberg dansari en hún ætlaði sér stóra hluti í prufunum fyrir dansþáttinn Dans Dans Dans sem fóru fram um helgina. Sigrún meiddist í nára á föstudeginum en reyndi að gera allt svo hún gæti tekið þátt í keppninni á laugardeginum. „Ég var byrjuð að finna fyrir smá eymslum á föstudaginn en svo þegar ég var að fínpússa atriðið mitt um kvöldið fór ég alveg í náranum,“ segir Sigrún. Hún var í beinu sambandi við sjúkraþjálfarann sinn um nóttina og lá meðal annars í laxerolíubaði góða stund, en það á að mýkja vöðva og hjálpa til við að vinna bug á meiðslum af þessu tagi. „Ég er vön að harka öll meiðsli af mér og hef dansað bæði rófubeins- og rifbeinsbrotin. Ég er svo þrjósk að ég var meira að segja komin í gallann og á leiðinni upp í Laugardalshöll haltrandi á laugardagsmorguninn. Svo áttaði ég mig á því að ég væri ekkert að fara að taka þátt svona haltrandi og aum,“ segir Sigrún en hún sagði í viðtali við Fréttablaðið fyrir viku að hún væri með brjálað atriði í undirbúningi. „Nú verð ég bara heima að horfa á þáttinn sem verður óneitanlega bæði gaman og skrýtið, því ég var orðin spennt yfir að taka þátt. Ég verð bara að geyma atriðið mitt til betri tíma,“ segir Sigrún sem verður bara að liggja heima og jafna sig á meiðslunum næstu daga og hefur því aflýst allri kennslu næstu daga. „Það er erfitt þegar maður vinnur við að hreyfa sig að þurfa að slaka á en ég verð róleg í smástund og kem svo aftur af fullum krafti.“ - áp
Mest lesið Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Lífið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Fullkominn kókos og chiagrautur að hætti Elísabetar Mettu Lífið Fleiri fréttir Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Sjá meira