Á annan veg í Bíó Paradís 7. október 2011 13:45
Kvikmyndin Á annan veg hefur verið tekin til sýninga í Bíó Paradís. Þetta er fyrsta kvikmynd leikstjórans Hafsteins Gunnars Sigurðssonar og hefur hún hlotið einróma lof gagnrýnenda. Myndin segir frá tveimur gjörólíkum mönnum sem neyðast til þess að eyða saman sumri úti í rassgati við vegavinnu upp úr 1980. Sá eldri og reyndari er ljóðelskt náttúrubarn sem kann hvergi betur við sig en uppi á hrjóstrugri heiði en hjá þeim yngri kemst fátt annað að en djamm og stelpur og reynist það honum þrautinni þyngri að bíða eftir næsta helgarfríi. Á annan veg dregur upp sannfærandi mynd af 9. áratugnum, en það tímabil passar skemmtilega illa inn í stórbrotna vestfirska náttúru sem er aðalsögusvið myndarinnar. Þetta er frumraun kvikmyndatökumannsins Árna Filippussonar sem þykir leysa verk sitt einstaklega vel úr hendi, en gagnrýnandi Fréttablaðsins hafði á orði að útlit myndarinnar væri áferðarfallegt og minimalískt og myndatakan “hreinasta afbragð.” Með aðalhlutverk fara Hilmar Guðjónsson, Sveinn Ólafur Gunnarsson og Þorsteinn Bachmann og þykir samleikur þeirra óaðfinnanlegur. Alþjóðleg frumsýning Á annan veg fór fram á hinni virtu kvikmyndahátíð í San Sebastian á Spáni fyrir nokkru þar sem myndin hlaut frábærar viðtökur. Á annan veg hefur verið boðið á fjölda hátíða í kjölfarið um allan heim og mun hún ferðast milli kvikmyndahátíða á næstu misserum. Henni var vel tekið af gagnrýnendum hér heima, Fréttablaðið gaf henni 4 stjörnur og sagði “óvenju þroskaða kvikmynd” sem væri “krydduð hæfilegum skammti af húmor og depurð.” Morgunblaðið gaf henni einnig fjórar stjörnur og sagði “framtíð íslenskra kvikmynda bjarta með menn eins og Hafstein Gunnar innanborðs. Íslenskir bíóunnendur eru hvattir til þess að kynna sér það nýjasta í íslenskri kvikmyndagerð í Bíó Paradís og sjá þessa stórgóðu kvikmynd sem þykir bæði meinfyndin og mannleg.
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Fullkominn kókos og chiagrautur að hætti Elísabetar Mettu Lífið Fleiri fréttir Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Sjá meira