Lífið

Enskur umbi með erindi

tony crean
Umboðsmaðurinn hefur unnið með Goldfrapp og Ladytron.
tony crean Umboðsmaðurinn hefur unnið með Goldfrapp og Ladytron.
Enski umboðsmaðurinn Tony Crean, sem unnið hefur með hljómsveitunum Goldfrapp og Ladytron, talar á fræðslukvöldi um umboðsmennsku sem Útón heldur 1. febrúar í Norræna húsinu. Crean, sem er eigandi umboðsskrifstofunnar Midnight to Six, mun flytja erindi um starf sitt og svara fyrirspurnum. Tónlistar­mennirnir Mugison og Daníel Bjarnason ræða einnig um hvernig þeir hafa þróað sinn feril innanlands og erlendis.

Námskeiðsgjald er 5.000 krónur og 3.000 krónur fyrir félagsmenn FTT, TÍ, FÍH, FÍT og FHF. Skráning er hjá greta@islandsstofa.is.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.