Laumar sér bakdyramegin inn í stórmynd í Hollywood 31. janúar 2011 10:00 Stefán Karl talaði inn á stórmyndina Thor, kenndi og söng íslenskar drykkjuvísur og tónaði Hávamál. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem hann er kallaður í slíkt verkefni, hann talaði líka inná Night at Museum fyrir fimm árum. Stefán gerir sér vonir um að rödd og íslenskan muni heyrast fyrir alvöru nú þegar þeir Þór, Óðinn og Loki birtast á hvíta tjaldinu. „
Það vantaði bara íslenskar raddir og ég var beðinn um að koma og syngja íslenska drykkjusöngva og segja setningar á íslensku," segir Stefán Karl Stefánssson, leikari í Bandaríkjunum. Rödd hans og nokkrar velvaldar setningar á íslensku heyrast væntanlega í stórmyndinni Thor sem verður frumsýnd 6. maí. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Stefán Karl er kallaður í slíkt verkefni því hann talaði einnig inn á Night at the Museum með Ben Stiller fyrir fimm árum. Stefán segir þetta hafa verið níu tíma vinna. „Ég kenndi fimmtán manna leikarahópi að tóna Hávamál og syngja upp á íslensku og svo voru þetta bara allskonar bakraddir." Þetta verkefni flokkast sem „voice over" og töluvert stór hópur manna og kvenna í Hollywood hefur sérhæft sig í að mynda allskonar mennsk aukahljóð inn á myndir til þess að ljá ákveðnum hlutum meiri dýpt. „Það er kannski einhver stjarna laminn í magann og þá vantar kannski hærra hljóð frá honum. Þá er ekkert hægt að hringja í stjörnuna og biðja hana um að koma í hljóðver og gefa frá sér svona hljóð heldur er það bara svona „voice over"-leikari sem sér um það," útskýrir Stefán. Og þannig fór vinnan við Thor fram. Stefán sat í hring með þessum fimmtán manna hópi, svo komu ákveðin atriði sem þurfti að bæta og þá stóð einhver upp og gaf frá sér hljóð eða sagði eitthvað orð. Því er spáð að Thor verði ein af sumarsmellum ársins í ár en myndin skartar stórstjörnum á borð við Natalie Portman og Anthony Hopkins í helstu hlutverkum auk Chris Hemsworth sem leikur hinn vöðvastælta þrumuguð Þór. Leikstjóri er Kenneth Brannagh og hann var að sjálfsögðu viðstaddur upptökurnar. Stefán veit hins vegar ekki hversu mikið heyrist af íslenskunni í myndinni, það hafi til dæmis ekkert heyrst frá honum í Night at the Museum. „Ég er nánast alveg klár á því að það heyrist vel „Heill sértu Þór" þegar hann er krýndur sem konungur í myndinni." Stefán segir þetta hafa verið ákaflega skemmtilega reynslu, þetta sé svona bakhliðin á kvikmyndagerðinni. Hann bjóst hins vegar ekki við því að fara leggja þetta fyrir sig. „Það var mjög skemmtilegt að sjá þennan ættbálk svokallaðra „voice over"-leikara. Og þeir hafa sæmilega upp úr þessu, hundrað þúsund krónur á dag." freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Sjá meira