Ágústa Eva og Valgerður Guðna á stórtónleikum 15. apríl 2011 09:09 Ágústa Eva og Valgerður. Myndir/Stefán Karlsson
Söngkonurnar Valgerður Guðnadóttir og Ágústa Eva Erlendsdóttir verða einsöngvarar á tónleikum í Langholtskirkju á sunnudag og mánudag. Þá efna Samkór Kópavogs og Kór Menntaskólans við Sund til stórtónleika í samvinnu við kennara og lengra komna nemendur úr tónlistarskólum á höfuðborgarsvæðinu. Fram koma um 100 söngvarar og sinfóníuhljómsveit með 60 hljóðfæraleikurum en flutt verður verkið Stabat Mater eftir Karl Jenkins. Stabat Mater er 13. aldar kirkjutexti sem fjallar um þjáningu Maríu meyjar, móður Krists, er hún fylgist með krossfestingu og dauða sonar síns. Eins og efni textans gefur tilefni til er Stabat Mater eftir Karl Jenkins lengst af hægferðugt og íhugult tónverk en það rís á nokkrum stöðum og eru þá raddir, strengir, lúðrar, trumbur og málmgjöll þanin til hins ýtrasta. Í tónlistinni gætir víða austrænna áhrifa, meðal annars í arabískum söngspuna sem fluttur verður af Ágústu Evu Erlendsdóttur. Þá er einn kafli verksins harmljóð við texta Carol Bennet, eiginkonu tónskáldsins, og fluttur af Valgerði Guðnadóttur.Samkór Kópavogs.Hjörleifur Valsson vermir sæti konsertmeistara og stjórnandi á tónleikunum verður Björn Thorarensen. Þetta er í þriðja sinn á jafnmörgum árum sem Samkór Kópavogs í samvinnu við aðra tónlistarflytjendur frumflytur stórt kórverk eftir Karl Jenkins. Í fyrra var það Vopnaði maðurinn: Friðarmessa og árið þar áður Requiem/Sálumessa. Tónleikarnir verða í Langholtskirkju 17. og 18. apríl næstkomandi. Miðasala er á samkor.is en á tónleikana kostar þrjú þúsund krónur.
Menning Mest lesið Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið Fleiri fréttir Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Sjá meira