Lady Antebellum sigursæl 15. febrúar 2011 12:30
Kántríhljómsveitin Lady Antebellum kom, sá og sigraði á 53. Grammy-verðlaunahátíðinni í Los Angeles. Kántrítríóið Lady Antebellum og poppstjarnan Lady Gaga voru atkvæðamest á Grammy-hátíðinni sem var haldin í Los Angeles. Lady Antebellum hlaut fimm verðlaun, þar á meðal tvenn fyrir lagið Need You Now. Hljómsveitin var stofnuð árið 2006 og hefur síðan þá náð fjórum lögum á topp kántrílista Billboard. Hér fyrir ofan má sjá myndbandið við lag ársins, Need You Now. Lady Gaga stal senunni þegar hún var borin inn í risavöxnu eggi. Lady Gaga, sem var borin til athafnarinnar í risavöxnu eggi, hlaut þrenn verðlaun, rétt eins og rapparinn Jay-Z og sálarsöngvarinn John Legend. Jay-Z var heiðraður í tvígang fyrir lagið Empire State of Mind, sem hann söng með Aliciu Keys við miklar vinsældir. Rapparinn Eminem var tilnefndur til tíu verðlauna en hlaut aðeins tvenn, fyrir bestu rappplötuna (Recovery) og fyrir lagið Not Afraid. The Arcade Fire átti hljómplötu ársins, The Suburbs. Margir töldu að Eminem fengi verðlaun fyrir bestu plötuna en þau verðlaun komu í hlut kanadísku hljómsveitarinnar Arcade Fire fyrir The Suburbs. Þá hlaut gamla kempan Neil Young verðlaun fyrir rokklag ársins og voru það fyrstu Grammy-verðlaun hans á löngum ferli.Esperanza Spaldin var kjörin nýliði ársins.Einnig kom það mörgum á óvart þegar söngkonan Esperanza Spalding var kjörin besti nýliðinn á kostnað nýstirnanna Justins Bieber og hipphopparans Drake.
Mest lesið Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Tónlist Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Lífið Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Geislasverð Loga Geimgengils seldist á 470 milljónir Bíó og sjónvarp „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið Fleiri fréttir Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Sjá meira