Eyjafjallajökull: Lokun hættusvæða enn í fullu gildi 4. maí 2010 16:40
Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra minnir á að lokanir séu enn í fullu gildi á svæðinu umhverfis eldgosið í Eyjafjallajökli. Í tilkynningu segir að undanfarið hafi verið töluverð ásókn í að komast inn á lokuð hættusvæði í grennd við gosstöðvarnar. „Þó svo að þessar náttúruhamfarir séu mikið sjónarspil sem áhugavert er að skoða þá er ástæða til að árétta þær hættur sem því geta fylgt. Minnt er á að lokanir sem ákveðnar hafa verið eru enn í fullu gildi samanber kort gefið út 27. apríl 2010." Þá er bent á að ekki sé vitað með vissu hvaða áhrif umbrotin hafa haft á jökulinn sjálfan. Sprungur geta hafa myndast og vitað er um a.m.k. eina vatnsrás, um 50 metra djúpa á sunnanverðum jöklinum. „Nú líður senn að því að jökulhaftið milli gígsins á toppi fjallsins og Gígjökuls bresti. Við það munu eitraðar lofttegundir s.s. koltvísýringur (CO2) og brennisteinsvetni (H2S) eiga greiðari leið niður Gígjökul og út á eyrarnar framanvið jökulinn," segir einnig. Þá er minnt á að í eldgosum sem þessu kemur fyrir að gusthlaup fara niður farvegi eins og Gígjökul þó ekki sé það algengt. „Gusthlaup verða þegar blanda af gasi og fínkorna bergryki mynda lága bólstra yfir gjósandi gígum eða þegar aska hrynur úr ofhlöðnum gosmekki. Gusthlaup fara undan halla og fara hratt yfir svo ástæða er til að forðast hugsanlega farvegi þeirra."
Mest lesið Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Erlent Tveir menn fjárkúguðu ungan dreng Innlent Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Innlent Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Innlent Telur sig hafa orðið vitni að aðdraganda drápsins Innlent Hlýnar um helgina Veður Aðilar „einfaldlega ekki tilbúnir að teygja sig nógu langt“ Innlent Bandaríkjamenn refsa sendifulltrúa SÞ í málefnum Palestínumanna Erlent Pilturinn er fundinn Innlent Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja Innlent Fleiri fréttir Jökulhlaup úr Mýrdalsjökli í Leirá Syðri og Skálm enn í gangi Telur sig hafa orðið vitni að aðdraganda drápsins Borgarbúar frekar hlynntir kílómetragjaldi en landsbyggðin Aðilar „einfaldlega ekki tilbúnir að teygja sig nógu langt“ Tveir menn fjárkúguðu ungan dreng Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Pilturinn er fundinn „Skýr vísbending um að gera þurfi betur í málefnum erlendra barna“ Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Sjá meira