FM Belfast lenti í ofsaveðri í Færeyjum 20. júlí 2010 14:00 FM Belfast lenti óveðri á tónleikahátíð í Færeyjum en gátu þó spilað um leið og veðri lægði. „
Við urðum svo sem ekki mikið vör við þetta því við sátum inni í húsí þegar veðrið var sem verst. Okkur fannst samt mjög leiðinlegt að tónleikunum yrði kannski frestað,“ segir Árni Vilhjálmsson, meðlimur hljómsveitarinnar FM Belfast, en hljómsveitin lenti í ofsveðri í Færeyjum þegar þau tróðu upp á á tónleikahátíðinni G! á fimmtudaginn. Tónleikahátíðin er sú stærsta í Færeyjum og er haldin í litla sjávarþorðinu Gata. Dagskránni seinkaði mikið og útlit var um tíma að öllu tónleikahaldi yrði frestað á fimmtudeginum en hátíðin stóð yfir helgina. Mikið úrhelli og rok olli glundroða á svæðinu, þar sem tjöld fuku á haf út og tónleikagestir þurftu að rýma svæðið. „Færeyjingar eru samt greinilega vanir miklum veðrabreytingum eins og við á Íslandi. Gerðu allt mjög skipulega en sögðust samt ekki hafa upplifað svona vont veður í langan tíma,“ segir Árni og að hann hafi ekki upplifað áður svona vont veður á útihátíð áður. Stærsta sviðinu, sem er staðsett á ströndinni, var lokað af öryggisástæðum og minna sviðið laskaðist í látnunum. Sumir tónleikagestirnir sáu á eftir tjöldunum sínum út á af en eftir helgina munu tjöld hafa verið uppseld í Færeyjum, enda þurftu margir að endunýja. Það stytti þó upp þegar líða tók á kvöldið og FM Belfast steig á stokk um við mikla ánægju tónleikagesta. „Það var frábært að sjá hvað margir mættu þrátt fyrir hvernig dagurinn var búinn að vera. Allir í regngöllunum og með bros á vör. Bara dansandi í drullinu,“ segir Árni en Fréttablaðið frétti af einum æstum aðdáenda sem lagði á sig klukkutíma leigubílaferð frá Þórshöfn til að bera íslensku hljómsveitina augum þegar tónleikhald hófst á ný. - áp
Mest lesið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira