Stærsta breiðtjald landsins 18. október 2010 10:00 Björn í aðalsalnum þar sem kvikmyndum verður varpað á stærsta breiðtjald landsins. Allir stólar verða stakir og því leikur aldrei neinn vafi á því hver á hvaða gos og hvaða popppoka.Fréttablaðið/Vilhelm
Sambíóin stefna á að opna nýtt kvikmyndahús í Egilshöll hinn 4. nóvember. Um hundrað iðnaðarmenn eru nú að störfum við að gera allt klárt en kvikmyndahúsið mun skarta einu stærsta breiðtjaldi Evrópu. „Við vorum bara nokkrum vikum frá opnun árið 2008. En þá fór allt á hliðina og þetta var sett í frost. Nú stefnum við á 4. nóvember,“ segir Björn Árnason hjá Samfilm. Hugmynd sem kviknaði hjá honum fyrir sjö árum er nú loks að verða að veruleika; kvikmyndahús í Grafarvogi. „Þetta er 41 þúsund manna svæði með Kjalarnesinu, Mosfellsbæ og Grafarvoginum. Markaðurinn er því fyrir hendi,“ segir Björn. Yfir aðalsjoppunni verður strengdur hátt í fimmtíu metra langur borði með myndum af kvikmyndastjörnum, bæði íslenskum og erlendum. Þegar leiðin liggur inn í aðalbíósal kvikmyndahússins er ljóst að þar hefur ekkert verið til sparað. „Upphaflega átti salurinn að vera með fjögur hundruð sætum. En við ákváðum að fórna nokkrum stólum fyrir aðeins meira pláss,“ segir Björn og bætir við að allir stólarnir séu stakir og úr leðurlíki. Hins vegar er stjarna salarins án nokkurs vafa breiðtjaldið í stóra salnum. Það er tuttugu metrar að lengd og að sögn Björns er það því stærsta breiðtjaldið á Íslandi og þótt víðar væri leitað. Stóru hasarmyndirnar frá Hollywood fá því að njóta sín. „Við ætluðum að hafa Bond-myndina Quantum of Solace sem opnunarmyndina 2008. En nú verður það Due Date með Robert Downey Jr. og Zach Galifianakis úr The Hangover.“- fgg
Mest lesið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Lady Gaga orðin mamma Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira