Hin eina og sanna jólabókafjölskylda 16. nóvember 2010 06:00 Ekkert stríð (Frá vinstri) Yrsa Þöll, Gunnar Theódór, Þórunn Erla og Magnús Þór, Megas, tengjast bæði fjölskyldu-og útgáfuböndum. Þau segja þó ekkert stríð í gangi sín á milli heldur styðji þau hvert annað.Fréttablaðið/Daníel
Þórunn Erlu-Valdimarsdóttir, Yrsa Þöll Gylfadóttir, Gunnar Theodór Eggertsson og Magnús Þór Jónsson, Megas, tengjast öll. Þau eru vissulega að gefa út bók fyrir þessi jól en það þykir svo sem ekki tíðindum sæta. Hitt er hins vegar merkilegra að Yrsa og Gunnar eru kærustupar og Gunnar er sonur Þórunnar. Sonur Megasar, Þórður, er síðan kvæntur systur Yrsu, Bryndísi Höllu. Og til að múlbinda þessar tengingar allar þá á tengdadóttirin Yrsa sama afmælisdag og tengdamamman Þórunn. „Hilmar Örn Hilmarsson, tónlistarséní og allsherjargoði, sagði í gamla daga þegar tilviljanir mynstruðust saman: „Það er góð stjórn í þessum heimi“. Þetta að synir okkar vinanna séu svilar er einmitt þannig,“ segir Þórunn. Hún gefur út tvær bækur fyrir þessi jól: Mörg eru ljónsins eyru og Dag kvennanna sem hún skrifar ásamt Megasi. Þórunn segir þær Yrsu afsanna klisjuna um spennuþrungið samband tengdamömmu og -dóttur, því þeim komi mjög vel saman. „Ég er meðvirk með krökkunum því í listamenn virðist mega henda hverju sem er, hauskúpum eða stjörnum,“ segir Þórunn. Magnús Þór, Megas, hafði ekki haft tækifæri til að lesa allar hinar bækurnar þegar Fréttablaðið náði tali af honum en þetta er ekki í fyrsta skipti sem hann gefur út bæði bók og disk á sama árinu, það gerðist einnig 1990. „Og nú er ég að gefa út hálfa bók og einn þriðja disk,“ segir Magnús og vísar þar auðvitað til geisladisksins MS:GRM með Gylfa Ægis og Rúnari Þór. Yrsa er hins vegar að gefa út sína fyrstu skáldsögu, Tregðulögmálið. Í fyrstu stóð reyndar ekki til að bókin kæmi út fyrir þessi jól og raunar hugðist Gunnar ekki heldur gefa neitt út á þessu ári. En örlagadísirnar gripu í taumana, Gunnar fékk hugmyndina að Köttum til varnar eftir allt kattafárið sem gekk yfir landið í sumar og Yrsa fékk að vita fyrst í september að Tregðulögmálið gæti komið út um þessi jól. „Það er engin samkeppni á milli okkar, við gleðjumst vegna sérhvers okkar og það er heldur ekki hægt að bera mig saman við reynsluboltann Þórunni,“ segir Yrsa. Hún segir tengdó hafa lesið yfir og gefið sér margar góðar ábendingar þegar hún var að skrifa Tregðulögmálið. „Hún sagði mér líka fljótt að maður þyrfti að brynja sig og hafa trú á því sem maður væri að gera.“ freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Nakinn á kóræfingu Lífið Ólöf og Magnús ástfangin á frumsýningu Menning „Skýið er bleikt og við erum sannarlega enn þá á því skýi og í sjokki“ Lífið „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ Lífið Laufey fékk sæta kveðju frá yngsta Grammy-verðlaunahafa sögunnar Lífið Síðasti leynigesturinn opinberaður Lífið Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið Hestastelpa úr sveit og sjóðheitur hönnuður Menning Ungir hjartaknúsarar mæta á hvíta tjaldið Bíó og sjónvarp Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Fleiri fréttir Nakinn á kóræfingu Laufey fékk sæta kveðju frá yngsta Grammy-verðlaunahafa sögunnar „Skýið er bleikt og við erum sannarlega enn þá á því skýi og í sjokki“ Síðasti leynigesturinn opinberaður „Hvernig ég er að gera þetta núna er ekki hægt til lengri tíma“ Tók Indriða í pontu og uppskar hláturskast í þingsal X-ið bætir við sig Bolla Vaskir Valsmenn hressir á Hlíðarenda „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ „Ekki er þetta uppáhaldslagið þitt?“ Forsetinn hótar lögsókn: „Vertu viðbúinn Noah“ „Þakklát fyrir að eiga stóran orkutank inni í litlum búk“ Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 „Ekki láta aldurinn eða stoltið stoppa þig“ Hvernig breytirðu þér í Dag Sigurðsson? Leyndardómar flugvallarins í Denver: Dómsdagsbyrgi, hakakrossar og blár hestur með rauðglóandi augu Fundu ástina í stjórnarráðinu Íslenskt par í Köben stofnar nýjan leikjavef Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Þessi fengu Grammy og sendu ICE-kaldar kveðjur Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Laufey gæti orðið tvöfaldur Grammy-verðlaunahafi í nótt Kynlíf á ekki að vera vont Dagur kvenfélagskonunnar er í dag 1. febrúar Dýrðardagur í Kenýa endaði með bónorði Listamenn safna fyrir 10 ára dreng á Selfossi í dag Úr söngvakeppni í fegurðarsamkeppni Krakkatían: Gott kvöld, handboltinn og Tene Fékk „karlrembu, transfóbíu og rasisma“ í flasið á skurðstofunni Sjá meira
Leyndardómar flugvallarins í Denver: Dómsdagsbyrgi, hakakrossar og blár hestur með rauðglóandi augu