Lífið

Gunnlaug vann Bafta-verðlaun

Gunnlaug Þorvaldsdóttir, til vinstri, samdi tónlist fyrir stuttmyndina I Do Air sem sigraði á BAFTA-hátíðinni.
Gunnlaug Þorvaldsdóttir, til vinstri, samdi tónlist fyrir stuttmyndina I Do Air sem sigraði á BAFTA-hátíðinni.

Tónlistarkonan Gunnlaug Þorvaldsdóttir samdi tónlistina og sá um hljóðvinnslu fyrir myndina I Do Air sem sigraði í flokki stuttmynda á BAFTA-verðlaunahátíðinni. Stuttmyndin, sem er í leikstjórn Martinu Amarti, fjallar um unga stúlku sem þorir ekki að dýfa sér ofan í sundlaug. Hún finnur til niðurlægingar og hverfur inn í búningsklefann þar sem hún flýr inn í draumaveröld með því að halda niðri í sér andanum.

Gunnlaug er stödd í London þessa dagana þar sem hún fylgdist með verðlaunaafhendingunni og segist hún vera í skýjunum vegna velgengni myndarinnar.

„Ég var ekki viðstödd sjálfa afhendinguna en ég fylgdist með annars staðar frá ásamt öðrum sem að myndinni stóðu. Það komast auðvitað ekki allir á hátíðina sjálfa eins og gefur að skilja. En þetta var alveg sérstök upplifun og maður varð hálf klökkur. Ég flýtti mér svo heim seinna um kvöldið til að fara á netið og fullvissa mig um að myndin hafi í raun sigrað í sínum flokki,“ segir Gunnlaug. Sérstök sýning verður á myndinni í kvöld og verður Gunnlaug viðstödd þá sýningu.

„Mér fannst í raun nóg að myndin hafi verið tilnefnd til þessara verðlauna, en það að hún hafi sigrað er alveg magnað. Þetta er fyrsta myndin þar sem ég sé bæði um tónlist og alla hljóðvinnslu og þetta virkar auðvitað mjög hvetjandi á mig,“ segir Gunnlaug sem hefur í nægu að snúast þessa dagana því auk þess að vinna að gerð heimildarmyndar hyggst hún á frekara samstarf með Amarti.- sm






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.