Lífið

Noel frestar plötuútgáfu

Noel Gallagher hyggst einbeita sér að komandi erfingja og því verður bið á útgáfu með sólóefni frá honum.
Noel Gallagher hyggst einbeita sér að komandi erfingja og því verður bið á útgáfu með sólóefni frá honum.
Noel Gallagher, gáfaða bróðurnum úr Oasis, liggur ekkert á að taka upp nýtt efni fyrir sólóplötu sína. Hann ætlar að einbeita sér að komandi erfingja. Noel yfirgaf Oasis í ágúst á síðasta ári eftir að hafa lent í slag við yngri bróður sinn, Liam. Þeir bræður hafa reyndar ekki átt skap saman og þetta var síður en svo í fyrsta skipti sem þeim tveimur lenti saman. Noel tilkynnti skömmu síðar að hann hygðist hefja sólóferil en einhver bið verður á því að nýtt efni heyrist frá honum. „Við erum að flytja, konan mín er komin níu mánuði á leið og ég ætla bara að vera í bleyjuskiptum eitthvað fram á næsta ár,“ sagði Gallagher sem er kvæntur Söru MacDonald.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.