Meistari Burton snýr aftur 4. mars 2010 01:00 Ævintýrin gerast enn Lísa í Undralandi snýr aftur í leikstjórn Tims Burton og að sjálfsögðu er Johnny Depp í aðalhlutverkinu.
Nýjasta kvikmynd Tims Burton, Alice in Wonderland, verður frumsýnd um helgina en hún skartar hirðleikara leikstjórans, Johnny Depp, í aðalhlutverki. Þetta er sjöunda myndin sem þeir félagar gera saman og sú fjórða í röð. Enda engin ástæða til að hætta því sem vel gengur. Að sjálfsögðu er Helen Bonham Carter einnig í myndinni enda eiginkona leikstjórans og honum álíka mikilvæg og tökuvél. Myndin er byggð á samnefndri skáldsögu Lewis Carrol en tekur upp þráðinn nokkrum árum eftir að Lísa kemst úr Undralandi. Hún snýr aftur, nítján ára gömul, og kemst að því að hin illa rauða drottning hefur tekið öll völd. Verkefni Lísu er því að koma henni frá völdum. Með hlutverk Lísu fer Mia Wasikowska en einhverjir kynnu að kannast við hana úr sjónvarpsþáttunum In Treatment. Tæknin leikur lykilhlutverk hjá Burton að þessu sinni en myndin er að sjálfsögðu í þrívídd eins og er vinsælt í Hollywood um þessar mundir. Þá má reikna með því að næmt auga leikstjórans fyrir litum leiki einnig lykilhlutverk í útliti myndarinnar og svo auðvitað Johnny Depp. Í öðrum hlutverkum eru síðan Stephen Fry og Alan Rickman en það er Anne Hathaway sem fer með hlutverk Hvítu drottningarinnar. Af öðrum kvikmyndum sem eru frumsýndar nú um helgina má nefna englamyndina Legion með Paul Bettany í aðalhlutverki og From Paris With Love með John Travolta í aðalhlutverkinu.
Mest lesið Eva Laufey og Haraldur stækka við sig á Skaganum Lífið Opnaði sig um skilnaðinn: „Hún eldar ekki, þrífur ekki og virðist ekki mjög móðurleg“ Lífið „Dýrmætt að fá að hafa þetta svona persónulegt“ Lífið Aldraður boltasækir steig síðasta dansinn Lífið Echoes of the End: Íslensk frumraun undir góðum áhrifum stríðsguðsins Leikjavísir Nýr Rambo fundinn Bíó og sjónvarp Tekinn fullur, missti fjölskylduna og fékk krabbamein á sama árinu Lífið Eigendaskipti á Kaffi Laugalæk: Breyta til en lofa sömu stemningu Lífið Jóhann Alfreð og Valdís keyptu hús í Mosfellsbæ Lífið Stöðugt á ferð og flugi með sterkari skrokk Lífið samstarf Fleiri fréttir Með um 300 tegundir af rósum í garðinum sínum Jóhann Alfreð og Valdís keyptu hús í Mosfellsbæ Fyrsta tónlistarfólkið á almyrkvahátíðinni kynnt til leiks Opnaði sig um skilnaðinn: „Hún eldar ekki, þrífur ekki og virðist ekki mjög móðurleg“ Aldraður boltasækir steig síðasta dansinn Suðrænn og ferskur þeytingur að hætti Jönu Eva Laufey og Haraldur stækka við sig á Skaganum „Dýrmætt að fá að hafa þetta svona persónulegt“ Eigendaskipti á Kaffi Laugalæk: Breyta til en lofa sömu stemningu Leifur Andri og Hugrún trúlofuð Fyrstu skrefin tekin á sama stað og símtalið um fæðinguna barst Stjörnulífið: Ástin, glimmer og ofurkroppar „Við ætlum að hlaupa fyrir hana Birtu okkar“ Tekinn fullur, missti fjölskylduna og fékk krabbamein á sama árinu Superstore-leikari látinn Mugison gekk í það heilaga við litla útiathöfn Krakkatían: Afmælistónleikar, maraþon og bílpróf Myndaveisla: Samstaða og stolt í algleymingi í Gleðigöngunni Með sex sjúkdóma og ólæknandi mein en lætur ekkert stoppa sig Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Hommar, lesbíur, trans fólk og fleiri sameinast í gleðinni Fréttatía vikunnar: Gleðigangan, hafmeyjustytta og handtaka Myndaveisla: Tröllatrukkur og Rolls Royce á svæðinu þegar hjónin gengu út Bay segir skilið við Smith Nígerísk hjón reisa glerkastala í Kjós og flytja inn tonn af blómum til að gifta sig aftur Endar örugglega sem 83 ára drottning í Gleðigöngunni Hver er Endakallinn frá Ibiza? Nígerískt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju „Magnað innra ferðalag“ að horfast í augu við saklausa barnið í sér Fyrrverandi eiginmaður Kelly Clarkson látinn Sjá meira