Samgönguráðherra endurskoði hugmyndir um sameiningu 26. apríl 2010 10:05 Starfsmenn Siglingastofnunar Íslands vilja að samgönguráðherra, endurskoði hugmyndir sínar um sameiningu samgöngustofnana. Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Starfsmenn Siglingastofnunar Íslands vilja að Kristján Möller, samgönguráðherra, endurskoði hugmyndir sínar um sameiningu samgöngustofnana. Starfshópur var skipaður í haust til að undirbúa sameiningu samgöngustofnana í framhaldi af skýrslu nefndar um framtíðarskipan stofnana samgöngumála, sem ráðherra skipaði í janúar 2009 í framhaldi af stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar um samgönguframkvæmdir frá júní 2008. Starfsmenn Siglingastofnunar hafa tekið þátt í starfi hópsins. Í ályktun starfsmannafundar Siglingastofnunar segir að úttekt Ríkisendurskoðunar hafi verið gerð eftir ýmsar uppákomur vegna stjórnsýslu samgönguráðuneytisins og Vegagerðarinnar í tengslum við kaup og endurbætur á Grímseyjarferju. „Hugmyndir um sameiningu samgöngustofnana eiga sér því frekar upphaf í þeirri ferju, fremur en í bankahruni eða þáttur í sparnaði í ríkisrekstri eins og ráðuneytið vísar nú til." Leið ráðherra styrkir ekki samgöngustofnanir Í ályktuninni segir að Kristján hafi lýst þeirri skoðun sinni með starfsmönnum stofnunarinnar að starfshópnum yrði falið að útfæra og undirbúa að setja á fót annars vegar Stjórnsýslustofnun samgöngumála og hins vegar Framkvæmdastofnun samgöngumála. Auk þess yrði hópnum falið að skoða aðrar leiðir og meta hvort þær væru betri. Slíkt mat hafi hins vegar ekki enn farið fram. „Ekki hefur verið sýnt fram á að sú leið sem samgönguráðuneytið kýs að fara geri samgöngustofnanir faglega sterkari eða hafi í för með sér samlegðaráhrif og hagræðingarmöguleika og ekkert kostnaðar- eða hagræðingarmat hefur enn verið gert vegna fyrirhugaðrar sameiningar," segir í ályktun starfsmanna Siglingastofnunar. Í ljósi þess að allar leiðir hafa ekki verið skoðaðar og að hvorki hefur verið sýnt fram á að leið samgönguráðuneytis styrki samgöngustofnanir faglega né að hún hafi í för með sér samlegðaráhrif og hagræðingarmöguleika fyrir ríkissjóð hvetja starfsmenn Siglingastofnunar Kristján eindregið að skoða kostnaðarhliðina, aðrar leiðir og ávinning af samlegð með sameiningu.
Mest lesið Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Innlent „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Innlent „Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Innlent „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Innlent Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu Innlent Farage segir af sér þingmennsku eftir uppljóstranir um gjafir Erlent Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Innlent Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Innlent Heilsufarsskoðanir skuli framkvæmdar að lágmarki fjórum sinnum Innlent Vill afnema sektir við vændiskaupum Innlent Fleiri fréttir Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu NATO-ríki auki stuðning við Úkraínu Spurning með sálina Girnist enn Grænland, vændiskaup og áfengisauglýsingar áhrifavalda Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun Heilsufarsskoðanir skuli framkvæmdar að lágmarki fjórum sinnum Yngstu fara flestar ferðir Steypubíllinn kominn úr ánni „Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Vill afnema sektir við vændiskaupum Telja gervigreind hafa verið beitt í þróaðri netárás Dró sambýliskonu sína eftir jörðinni og beitti ítrekað ofbeldi „Mjög er horft til þess sem Bandaríkjaforseti segir“ Íslendingar munu keppa um Bermúdaskálina Ein þurft að þjónusta 80 kaupendur á þremur sólarhringum Þór lætur Bandero eiga sig og sinnir öðrum málum „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Funda um niðurstöðu héraðsdóms Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Sögufræg Douglas DC 6 á leiðinni til Reykjavíkur Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Átök í hvalveiðiumræðunni og fælingarmáttur lögregluaðgerða Þrjú sveitarfélög á þremur kjörtímabilum „Þetta er eins og á tónlistarhátíð“ Kristrún og Þorgerður á NATO-fundinum í Ankara Brúnni lokað eftir að steypubíll hafnaði í Þjórsá Sjá meira