Bond verður Blomkvist 5. júní 2010 11:30 Daniel Craig er hugsanlega enska útgáfan af Mikael Blomkvist en David Fincher er að hefja tökur á Körlum sem hata konur sem byggð er á samnefndri bók Stiegs Larsson. Noomi Rapace hefur hvatt leikstjórann til að velja óþekkta leikkonu í hlutverk Lisbeth Salander en bæði Scarlett Johansson og Natalie Portman hafa lýst yfir áhuga sínum á að leika tölvuhakkarann snjalla.
Línur eru smám saman að skýrast með bandarísku endurgerðina af Karlar sem hata konur eftir Stieg Larsson. Brad Pitt virðist ekki ætla að leika rannsóknarblaðamanninn Mikael Blomkvist. Daniel Craig þykir núna líklegastur til að hreppa hlutverk Mikaels Blomkvist, rannsóknarblaðamannsins hjá Millenium-blaðinu í Svíþjóð. Eins og áður hefur verið fjallað um hafa kvikmyndafréttamiðlar lýst því yfir að hlutverk Blomkvists og Lisbeth Salander, tölvuhakkarans snjalla, séu þau safaríkustu í bransanum og því hefur fjöldi stórstjarna lýst yfir áhuga sínum á að leika í myndinni. Samningurinn við Craig hefur enn ekki verið staðfestur en samkvæmt kvikmyndavefnum Deadline.com standa viðræður nú yfir. Stórt skarð var höggvið í dagskrá Daniels Craig þegar tilkynnt var um seinkunn á 23. Bond-myndinni vegna fjárhagsvandræða MGM-kvikmyndaversins og hann gæti því verið ansi spenntur fyrir þessu hlutverki Blomkvists. Brad Pitt þótti um tíma langlíklegastur til að leika Blomkvist en leikarinn er auðvitað upptekinn við að sinna barnauppeldi og öðrum hlutverkum. George Clooney var einnig um tíma orðaður við hlutverkið en ekki er víst að aðdáendur bókanna hefðu sætt sig við slíkt val. Það er bandaríski leikstjórinn David Fincher sem mun stjórna hlutunum á tökustað en nýlega kom þriðja bókin um ófarir Lisbeth Salander og baráttu Mikaels Blomkvist fyrir réttlæti út í Bandaríkjunum. Bókin sló umsvifalaust í gegn og fór beint á toppinn hjá New York Times. Bandaríkjamenn hafa líkt og Evrópubúar kolfallið fyrir bókum Stiegs Larsson og Fincher, sem hefur leikstýrt kvikmyndum á borð við Seven og The Game, er því með ansi góðan efnivið í metsölumynd en búast má við þríleik líkt og Svíarnir gerðu sællar minningar með Noomi Rapace í aðalhlutverki. Rapace, sem ólst upp á Flúðum með móður sinni, hefur lýst því yfir að hún ætli sér ekki að leika í bandarísku útgáfunni þrátt fyrir að hafa hlotið mikið lof fyrir frammistöðu sína í sænsku myndunum. Hún hefur þó komið þeim skilaboðum á framfæri í viðtölum að Fincher ráði óþekkta leikkonu í hlutverk Salander en stjörnur á borð við Scarlett Johansson og Natalie Portman hafa verið orðaðar við hlutverkið. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Allir komust lifandi út – nema Beethoven Gagnrýni Giftu sig með tólf daga fyrirvara og mættu í krabbameinsmeðferð daginn eftir Lífið „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið „Við erum öll nóg“ Lífið „Ég ræð ferðinni“ Lífið „Sjálfsvinna er ævistarf“ Lífið „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Lífið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið KK átti salinn - en tónlistin varð útundan Gagnrýni Fleiri fréttir Giftu sig með tólf daga fyrirvara og mættu í krabbameinsmeðferð daginn eftir „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Páskabingó Blökastsins Úr Brúðkaupsþættinum Já yfir í að þjálfa leiðtoga Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Mótefni gegn afmennskun og kúgun Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Hundrað skvísur blómstruðu saman Er ástin blind? Eru konur ástsjúkari en karlar? Sjá meira