Í kröppum dansi í Las Vegas 9. október 2010 14:15 Tollverðirnir sem stoppuðu Bryndísi Gyðu vildu svo vera vinir hennar á Facebook. fréttablaðið/stefán „
Ég var tekin bak við og haldið þar í klukkutíma. Svo var ég spurð spjörunum úr og allt tekið upp úr öllum töskum mínum. Fyrst vissi ég ekkert hvað var í gangi en þeir útskýrðu svo hvað var í gangi,“ segir fyrirsætan Bryndís Gyða Michelsen. Bryndís er stödd í Las Vegas þar sem hún situr fyrir og eflir tengslanet sitt. Eftir að dótið hennar hafði verið grandskoðað í tollinum brýndu tollverðirnir fyrir henni að Las Vegas sé hættuleg borg fyrir nítján ára stelpur. „Þeir sögðu mér að fara mjög varlega og svo framvegis,“ segir Bryndís. „Það fyndnasta við þetta er að þegar ég kíkti inn á Facebook sá ég að tveir þeirra höfðu addað mér. Fannst það svolítið fyndið – þeir voru ekki alvarlegri þó en það.“ Bryndís fer í myndatökur víða í Nevada og meðal annars í eyðimörkinni við borgina sem aldrei sefur. Þá hittir hún fyrirsætur frá New York, Los Angeles og Miami sem eru í Las Vegas í sama tilgangi og hún. „Svo er mér boðið á ljósmyndaráðstefnu sem ég ætla að mæta á,“ segir Bryndís. „Ég held að það verði spennandi. Þetta er frábært tækifæri til að kynnast fleira fólki í þessum bransa og stelpum. Þetta er æðislegt. Ég dvel á Luxor, sem er eitt af fínustu hótelunum og það er komið fram við mann eins og prinsessu. Allir mjög almennilegir í Vegas.“ - afb
Mest lesið Stríðið um baðstrendur Ítalíu Lífið Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Lífið Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Lífið Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Lífið Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Lífið Vissir þú að JYSK selur bleikan útilegustól? Lífið samstarf Ríflega níutíu manns mættu í eitt stærsta pálínuboð Íslandssögunnar Matur „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum Lífið Fleiri fréttir Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Sjá meira