Sverðin á loft 18. mars 2010 02:00 Sverð og bogar Russell Crowe leikur Hróa Hött í nýrri mynd Ridley Scott, Guy Ritchie ætlar að gera mynd um Arthúr konung og Mel Gibson hyggst leikstýra stórri mynd um víkinga.
Síðasta æðið í Hollywood var stríðið í Írak, olíubransinn og allt sem tengdist Mið-Austurlöndum. Nú virðist nýtt æði vera að renna upp því þrjár kvikmyndir með sverð, boga og spjót í aðalhlutverkum eru ýmist á vinnslustigi eða á leið í kvikmyndahús. Fyrst ber að nefna kvikmynd Ridley Scott um Hróa Hött þar sem sjálfur Russell Crowe leiðir andspyrnuhópinn gegn hinum illa fógeta í Nottingham-skíri. Fyrsta stiklan úr myndinni er komin á Netið og er óhætt að fullyrða að hún lofi góðu þótt sum atriðin séu kunnugleg úr kvikmyndum á borð við Braveheart og Gladiator. Önnur mynd sem er komin ögn skemur á veg, en hefur þegar verið tilkynnt um, er Arthur. Breski leikstjórinn Guy Ritchie hyggst kvikmynda söguna um þessa frægu goðsögn. Arthúr hefur haft það fyrir sið að rata reglulega á hvíta tjaldið, síðast fyrir einum sex árum með Clive Owen, Ray Winstone og Mad Mikkelsen í helstu hlutverkum. Rithcie nútímavæddi síðast Sherlock Holmes og verður forvitnilegt að sjá hvað hann gerir fyrir þessa miklu mýtu. Þriðja myndin er síðan náttúrlega víkingamynd Mels Gibson með Leonardo DiCaprio í aðalhlutverki. Þar er hugsanlegt að íslensk tunga komi mögulega við sögu. Mel Gibson lét nýlega hafa eftir sér að þetta gæti verið síðasta myndin sem hann leikstýrði en það hefði alltaf verið draumur hans í æsku að gera mynd um víkinga.
Mest lesið Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Lífið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Lífið Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Lífið Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Menning Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Lífið Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Lífið Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Lífið Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Lífið Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Lífið Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“ Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Sjá meira