Innlent

Ungir bændur fái nýliðastyrk

Aðalfundur Samtaka ungra bænda beindi því til stjórnar samtaka sinna að beita sér fyrir því að komið verði á „raunverulegum nýliðunarstyrkjum til að tryggja endurnýjun í landbúnaði" eins og segir í ályktun fundarins sem haldinn var við Mývatn 17. apríl.

„Vegna hárrar skuldsetningar njóta yngri bændur ekki sömu kjara við kaup á greiðslumarki og eldri bændur, í formi lægri skatta vegna afskrifta. Þetta þýðir að yngri bændur geta ekki greitt jafn hátt verð fyrir greiðslumark og vinnur því gegn eðlilegri nýliðun í greinum," segir meðal annars í greinargerð með álytkun fundarins. - gar








Fleiri fréttir

Sjá meira


×