Banaslys við Ingólfsfjall Jón Hákon Halldórsson skrifar 10. maí 2010 17:50
Maðurinn sem skall utan í hamravegg í vesturhluta Ingólfsfjalls á svifflugvél á fjórða tímanum í dag lést í slysinu. Slysið varð á móts við Hvammsveg í Nýbýlahverfi nánar tiltekið á milli Arnarnípu og Hólsstaðagils. Lögregla, sjúkralið og björgunarsveitir frá Selfossi og Hveragerði fóru þegar á staðinn eftir að þeim barst tilkynning um slysið. Fallhlífarmaðurinn lenti ofarlega í fjallinu og björgunarsveitarmenn fóru á staðinn með sértækan búnað. Maðurinn var ekki með lífsmarki þegar björgunarmenn komu að honum. Félagi mannsins varð vitni að slysinu og tilkynnti strax til Neyðarlínu. Maðurinn mun hafa lagt upp af fjallinu í sviffallhlífinni en hægur vindur af norðvestri borið hann að hamrabeltinu með þessum hörmulegum afleiðingum. Hinn látni er af erlendu bergi brotinn og var búsettur á höfuðborgarsvæðinu en nafn hans er ekki hægt að gefa upp á þessari stundu. Það óhapp varð á meðan björgunaraðgerðir stóðu yfir að eldur kviknaði í sinu við fjallið og mikinn reyk lagði yfir svæðið sem björgunarmenn voru á sem var til mikillra óþæginda. Eldurinn kviknaði út frá heitu pústkerfi bíls félaga fallhlífarmannsins sem hafði hraðað sér að staðnum eftir að hann sá félaga sinn lenda á fjallinu. Slökkvilið frá Brunavörnum Árnessýslu og Slökkviliði Hveragerðis sáu um slökkvistarf. Lögreglan á Selfossi fer með rannsókn slyssins og við frumrannsókn var leitað Rannsóknarnefndar flugslysa en slys af þessu tagi heyrir þó ekki undir nefndina, segir í tilkynningu á vef lögreglunnar.
Mest lesið Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Innlent „Við ætlum að upplifa stóra drauminn hans Kristians Helga” Innlent Keyptu ónýtt hús og fá ekki áheyrn Innlent Lögreglumaður á sjúkrahúsi eftir alvarlega árás á Goslokahátíð Innlent Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Innlent Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Innlent Pilturinn er fundinn Innlent Gufunesmálið: Hringdu um miðja nótt og sögðu hinn látna vera kynferðisafbrotamann Innlent Fleiri fréttir Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Pilturinn er fundinn „Skýr vísbending um að gera þurfi betur í málefnum erlendra barna“ Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Inga Sæland með galsa á þingi í nótt „Orðaskiftismetið tikið“ Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Ungt fólk notar frekar samfélagsmiðla en hefðbundna fréttamiðla Sjá meira
Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Innlent
Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Innlent