Vinir Fishburne reyndu að stöðva klám dótturinnar 7. ágúst 2010 06:00 Laurence Fishburne ásamt Montana dóttur sinni fyrir fjórum árum þegar allt lék í lyndi. Hún segist ekki sækjast eftir frama í hefðbundnum kvikmyndum með útspili sínu, heldur sé gamall draumur að rætast. Paris Hilton er dæmi um stjörnu sem hefur náð miklum frama eftir að klámmyndband með henni kom út.
Klámmynd með dóttur leikarans Laurence Fishburne er farin í dreifingu. Hann ku vera eyðilagður maður yfir uppátækinu, en vinir hans reyndu að kaupa upp lagerinn af myndinni til að stöðva dreifingu hennar. Eins og fram hefur komið í Fréttablaðinu lék dóttir leikarans Laurance Fishburne í klámmynd sem fór í dreifingu á dögunum. Samkvæmt fréttasíðunni TMZ reyndu vinir leikarans að koma í veg fyrir dreifingu myndbandsins með því að kaupa upp lagerinn. Þeir leituðu til stjörnulögfræðingsins Yale Galenter sem hafði samband við Steve Hirsch, forstjóra Vivid, framleiðanda myndbandsins. Tilboðið hljóðaði upp á milljón dollara, eða um 120 milljónir íslenskar. Allt kom þó fyrir ekki þar sem Hirsch og félagar höfðu þegar sent myndbandið í dreifingu. Tímaritið People birti á dögunum viðtal við hina 18 ára gömlu Montana Fishburne. Ljóst er að hana hefur aldrei skort veraldleg gæði, þannig að peningar voru ekki ástæðan fyrir uppátækinu. Hún segir í viðtalinu að hún líti ekki á það sem stórmál að leika í klámmynd. „Mig hefur alltaf langað til að gera þetta,“ sagði hún. „Ég hef alltaf verið sátt við líkama minn og kynþokka.“ Hún segist ekki vonast til þess að myndin verði til þess að hún fái hlutverk í hefðbundnum kvikmyndum og sjónvarpsþáttum, eins og raunin varð þegar klám með Paris Hilton og Kim Kardashian kom út. „Ég er ekki í klámi til að komast í leiklist,“ segir Fishburne. „Ég er í klámi vegna þess að mig hefur alltaf langað til þess.“ Laurence Fishburne hefur verið tilnefndur til Óskarsverðlauna og leikur aðalhlutverkið í CSI-þáttunum vinsælu. Dóttir hans ráðfærði sig ekki við hann áður en hún tók þessa afdrifaríku ákvörðun. „Það var búið að framleiða myndina þegar þau komust að þessu þannig að ég gaf þeim ekki tækifæri til að tala mig til,“ segir Fishburne, en hún flutti úr foreldrahúsunum þegar hún varð 18 að eigin sögn: „Til að geta gert það sem ég vil án þess að foreldrar mínir reyni að koma í veg fyrir það.“ atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Margir að þykjast: „Þessi feluleikur að þykjast vera kúl er svo algengur“ Áskorun „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Lífið Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Lífið Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Lífið Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Lífið Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Lífið „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Lífið Íbúar furða sig á horfnu listaverki Menning Plokkað af krafti með forsetamaka Lífið Þjóðþekktir tónlistarmenn koma fram í heimahúsum Tónlist Fleiri fréttir Plokkað af krafti með forsetamaka „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Krakkatía vikunnar: Kindarlegur bansi í Feneyjum Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Allt það helsta frá Ungfrú Ísland „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Glæsilegar í Gamla Bíói Stjörnur fjármálabransans komu saman Eiginkonan hélt að Vígþór væri að grínast í fyrstu spurningu Hátindur Netflix réttur staður fyrir Baltasar Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Gunnar Smári rís upp úr „rotnandi holdi“ í sumar Oddvitaáskorun: „Við höfum þurft að skera allt niður vegna hamfaranna“ Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Sjá meira