Mávar átu skarfahræ ætluð örnum í Flóa 4. maí 2010 05:00
Eyþór Arnalds, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Árborg, gagnýnir uppbyggingu í fuglafriðlandi við Ölfusá og að sett skuli hafa verið út hræ af skörfum til að fóðra erni. „Það er furðulegt að raska ró fuglafriðlandsins með því annars vegar að dreifa þar fuglshræjum til að lokka erni í varplandið og hins vegar með því að reisa þar kaffihús og leggja út í malbikunarframkvæmdir,“ segir Eyþór. Nýlega gerði Árborg nýjan samning við Fuglavernd um umsjón með friðlandinu í Flóa og uppbyggingu þar. Jóhann Óli Hilmarsson, formaður félagsins, hafnar algerlega fullyrðingum Eyþórs um að framkvæmdirnar eða það að leggja út æti fyrir erni raski lífríkinu í friðlandinu. Þær séu aðeins „pólitískt moldviðri“ í aðdraganda kosninga. „Ég held að hann ætti að einbeita sér að sellóinu bara og láta það í friði sem hann hefur ekki hundsvit á og veit ekkert um og er að blaðra um eins og vitleysingur úti um allar jarðir,“ segir Jóhann Óli sem kveður alvanalegt að ernir séu fóðraðir. Það sé víða gert þegar harðindi séu mest á vetrum. Jóhann segist sjálfur hafa lagt út skarfahræin með félögum sínum og hann hafi oft gert það áður. Það hafi þó ekki borið tilætlaðan árangur í þetta skipti heldur eingöngu laðað að sér hrafna og máva. Hætt sé að bera æti í ernina áður en varp annarra fugla hefst. Hann hafi ætlað að vera búinn að fjarlæga skarfahræin fyrir vígslu nýs fuglaskoðunarhúss. „En það kom þarna eitthvert fólk degi of snemma og sá þetta – annars hefði aldrei neinn vitað af þessu,“ segir hann. Eyþór gagnrýnir einnig að Jóhann Óli, sem fulltrúi Vinstri grænna í umhverfisnefnd Árborgar, hafi setið beggja vegna borðsins í samningum sveitarfélagsins og Fuglaverndar, þar sem Jóhann er formaður eins og fyrr segir. Jóhann sat fund umhverfisnefndar þegar samningur Árborgar við Fuglavernd var samþykktur. „Mér finnst alltaf heppilegra að menn víki sæti þegar fjallað er um mál sem eru þeim tengd,“ segir Eyþór. Jóhann segir það aðeins hafa verið hugsunarleysi hjá sér að sitja fundinn þegar samningurinn var samþykktur. „Ég var kallaður þarna inn sem varamaður á einn fund. Þessi samningur er búinn að vera tilbúinn í þrjú ár og hann var ekkert ræddur efnislega á þessum fundi,“ ítrekar Jóhann. gar@frettabladid.is
Mest lesið Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Innlent „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Innlent „Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Innlent Farage segir af sér þingmennsku eftir uppljóstranir um gjafir Erlent Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Innlent Vill afnema sektir við vændiskaupum Innlent Heilsufarsskoðanir skuli framkvæmdar að lágmarki fjórum sinnum Innlent Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Innlent Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Innlent Gæti hætt að styðja við Evrópu fái Bandaríkin ekki Grænland Erlent Fleiri fréttir „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu NATO-ríki auki stuðning við Úkraínu Spurning með sálina Girnist enn Grænland, vændiskaup og áfengisauglýsingar áhrifavalda Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun Heilsufarsskoðanir skuli framkvæmdar að lágmarki fjórum sinnum Yngstu fara flestar ferðir Steypubíllinn kominn úr ánni „Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Vill afnema sektir við vændiskaupum Telja gervigreind hafa verið beitt í þróaðri netárás Dró sambýliskonu sína eftir jörðinni og beitti ítrekað ofbeldi „Mjög er horft til þess sem Bandaríkjaforseti segir“ Íslendingar munu keppa um Bermúdaskálina Ein þurft að þjónusta 80 kaupendur á þremur sólarhringum Þór lætur Bandero eiga sig og sinnir öðrum málum „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Funda um niðurstöðu héraðsdóms Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Sögufræg Douglas DC 6 á leiðinni til Reykjavíkur Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Átök í hvalveiðiumræðunni og fælingarmáttur lögregluaðgerða Þrjú sveitarfélög á þremur kjörtímabilum „Þetta er eins og á tónlistarhátíð“ Kristrún og Þorgerður á NATO-fundinum í Ankara Brúnni lokað eftir að steypubíll hafnaði í Þjórsá Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Handtekinn vegna líkamsárásar Sjá meira