Innlent

Neytendastofa sektar Krónuna og Hagkaup

Gerðar voru athugasemdir við verðmerkingar í verslunum Hagkaupa Litlatúni og Holtagörðum og verslun Krónunnar Hvaleyrarbraut.
Gerðar voru athugasemdir við verðmerkingar í verslunum Hagkaupa Litlatúni og Holtagörðum og verslun Krónunnar Hvaleyrarbraut.

Neytendastofa hefur sektað matvöruverslanakeðjurnar Krónuna og Hagkaup fyrir að fara ekki að tilmælum stofnunarinnar um að bæta verðmerkingar. Í tilkynningu segir að í nóvembermánuði 2009 hafi starfsmenn Neytendastofu gert skoðun á verðmerkingum í matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu.

„Í þeirri skoðun voru m.a. gerðar athugasemdir við verðmerkingar í verslunum Hagkaupa Litlatúni og Holtagörðum og verslun Krónunnar Hvaleyrarbraut."

Neytendastofa beindi þeim tilmælum var beint til verslananna að bæta úr verðmerkingum svo ekki þyrfti að koma til frekari aðgerða af hálfu stofnunarinnar. „Skoðununum var fylgt eftir í janúar og febrúar 2010 þar sem í ljós kom að áðurnefndar þrjár verslanir höfðu ekki gert fullnægjandi lagfæringar á verðmerkingum sínum og því hefur Neytendastofa nú lagt 350.000 kr. stjórnvaldssekt á Kaupás og 700.000 kr. stjórnvaldssekt á Hagkaup."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×