Lífið

Drew vildi tæta blaðamann í sig

Drew Barrymore var reið út í blaðamann sem spurði of mikið um æsku hennar. Hér er Barrymore ásamt kærasta sínum, Justin Long.
nordicphotos/getty
Drew Barrymore var reið út í blaðamann sem spurði of mikið um æsku hennar. Hér er Barrymore ásamt kærasta sínum, Justin Long. nordicphotos/getty

Leikkonan Drew Barrymore vinnur ötullega að því að kynna nýjustu mynd, Going the Distance, en hún leikur þar á móti kærasta sínum, Justin Long. Barrymore brást aftur á móti illa við þegar hún var spurð af breskum blaðamanni hvort hún yrði ekki oft þreytt á því að tala um æskuár sín.

„Mig langaði að gefa þeirri sem var hér áðan einn á hann. Hún talaði ekki um annað. Ég á ekki erfitt með að ræða þessi ár og ég skammast mín ekki fyrir fortíðina. Ég veit ég gerði mistök en ég lærði af þeim. En þessi blaðakona hætti ekki, mig langaði að tæta hana í mig,“ sagði Barrymore, sem er þó oftar þekkt fyrir bros sitt og smitandi hlátur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.