Lífið

Sér lítið af börnum sínum

Nicole Kidman og Keith Urban eiga eina dóttir. Börnin sem Kidman á með Cruise fær hún lítið að hitta.
nordicphotos/getty
Nicole Kidman og Keith Urban eiga eina dóttir. Börnin sem Kidman á með Cruise fær hún lítið að hitta. nordicphotos/getty
Leikkonan Nicole Kidman viðurkenndi í viðtali við tímaritið Hello að hún sæi lítið af börnunum tvemur sem hún ættleiddi ásamt fyrrum eiginmanni sínum, Tom Cruise.

Cruise og Kidman ættleiddu dótturina Isabellu árið 1992 og soninn Connor þremur árum síðar. Eftir skilnaðinn við Cruise hefur Kidman þó lítið umgengist börnin tvö. „Þau búa hjá Tom, það var þeirra val. Ég vildi gjarnan að þau byggju hér hjá okkur, en hvað getur maður gert?“ sagði leikkonan. Hún giftist sveitasöngvaranum Keith Urban árið 2006 og saman eiga þau eina dóttur, Sunday Rose.

Hún segist hafa nefnt barnið Sunday vegna þess að sunnudagar eru hennar uppáhalds dagar. „Áður en við Keith kynntumst voru sunnudagar þeir dagar sem ég kveið hvað mest því þeir voru svo lengi að líða. Núna eru sunnudagar uppáhalds dagarnir okkar því við getum sofið frameftir og gert það sem okkur sýnist. Okkur fannst sniðugt að nefna dóttur okkar eftir uppáhalds degi okkar.“





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.