Föst í ástarþríhyrningi í virtu leikhúsi í London 26. janúar 2010 05:00 María leikur hina sænsku Harriet sem er föst í ástarþríhyrningi. „
Það er ástarþríhyrningur í gangi. Minn karakter og aðalgaurinn Edgar eru gift, en búa ekki saman lengur og hún á í ástarsambandi við lækninn hans,“ segir leikkonan María Dalberg. María leikur eitt af aðalhlutverkunum í leikritinu In Memory of Edgar Lutzen sem verður frumsýnt 2. febrúar í hinu virta Old Red Lion-leikhúsi í London. „Hún er á milli þessara tveggja karlmanna í sýningunni og það er togstreita í gangi,“ segir María um hina sænsku Harriet sem hún túlkar í sýningunni. „Edgar talar líka um að hún komi til hans í draumum og njóti ásta með honum. Hann upplifir þetta allt í hausnum á sér. Ímyndar sér að hún komi til hans og sé hjá honum.“ María flutti til London haustið 2005 og útskrifaðist sem leikkona úr Drama Center London árið 2008. In Memory of Edgar Lutzen er stærsta verkefni sem María hefur tekið þátt í, en Íslendingar sáu hana síðast í Grease í leikstjórn Selmu Björnsdóttur í Loftkastalanum síðasta sumar. Julio Maria Martino leikstýrir In Memory of Edgar Lutzen en María kynntist honum á sýningu sem hann setti upp fyrir tveimur árum. „Ég hitti hann eftir sýninguna og þá kom í ljós að við höfum mjög svipaðan smekk á leikhúsi og kvikmyndum,“ segir María. „Svo í sumar þá hafði hann samband við mig og bað mig um að koma í samlestur fyrir þetta nýja verk. Hann prófaði fullt af leikurum og á endanum var hann komin með hópinn sem hann vildi vinna með og þar með hófst mikil undirbúningsvinna. Julio er ólíkur öðrum leikstjórum sem ég hef unnið með því að hann vill heldur vinna lengi og ítarlega með leikurunum fremur en hafa stutt æfingatímabil. Þessi mikla undirbúningsvinna er algjörlega að skila sér núna þegar við erum að vinna stíft fram að frumsýningu.“ Bandaríska leikskáldið David Hauptschein skrifar leikritið, en leikrit eftir hann hafa meðal annars verið sett upp í New York, London og Chicago. „Hauptschein hefur oft verið kallaður David Lynch leikhússins þar sem hann, líkt og Lynch, leikur sér að því að nota tíma og rúm á súrrealískan hátt,“ segir María. „Hann er sem stendur í London og situr á öllum æfingum og fylgist spenntur með á lokasprettinum.“ atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Menning Britney farin í meðferð Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Fleiri fréttir Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Sjá meira