Lífið

Spilar á World Expo í Kína

Ólafur Arnalds heldur til Kína í vikunni ásamt hljómsveit sinni en þau ætla meðal annars að spila á heimssýningunni í Sjanghæ.
Ólafur Arnalds heldur til Kína í vikunni ásamt hljómsveit sinni en þau ætla meðal annars að spila á heimssýningunni í Sjanghæ.

„Við förum á þriðjudaginn og svo eru tónleikarnir sjálfir næstkomandi föstudag," segir Ólafur Arnalds tónlistamaður en hann er að fara að spila á World Expo sýningunni í Sjanghæ. Þjóðhátíðardagur Íslands á heimssýningunni er einmitt á föstudaginn 11 september og verður Ólafur að spila meðal annars fyrir Forseta Íslands Ólaf Ragnar Grímsson.

„Þetta verður voðalega gaman og það er alltaf gaman að koma til Asíu," segir Ólafur en hann og hljómsveitin hans hafa ákveðið að framlengja ferðalaginu um tvær vikur og fara á smá tónleikaferðalag um Kína og spila svo á tónlistarhátíð í Hollandi á leiðinni heim.

„Við ákváðum að nýta þetta langa ferðalag til að spila á fleiri stöðum í landinu. Ég hef áður spilað í Kína og það gekk mjög vel," segir Ólafur en með honum í för er sex manna hljómsveit og eru þau á fullu í undirbúning þessa dagana. „Við erum að búa til nýtt „show" og í dag er ég til dæmis að læra inn á svona tölvustýrða ljósatakka. Mjög hressandi," segir Ólafur en hann á nokkkrum vinsældum að fagna í Kína og hefur til að mynda selt margar plötur. Aðspurður hvort hann viti ástæðuna fyrir velgenginni svarar ólafur hlæjandi „Ætli það sé bara ekki vegna þess að þeir eru svo fjölmenn þjóð, nei ég veit það ekki en það er gaman." Hann segir að það sé frábær upplifun að spila fyrir kínverska áhorfendur og að hann finni strax að það er önnur stemming á tónleikum.

„Kínverjar bera mikla virðingu fyrir tónlistinni og eru einbeittir þegar þeir hlusta á tónlistina. Svo einbeittir að þeir þora varla að klappa milli laga en bæta það svo upp með því að klappa þeim mun meira í lokin," segir Ólafur en Íslendingar fá næst að berja hann augum á Airwaves hátíðinni í október. -áp






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.