Sumarsmellirnir valda vonbrigðum 10. júní 2010 08:45 Jake Gyllenhaal hafði ekki alveg það aðdráttarafl sem framleiðendur Prince of Persia vonuðust til.
Að mati flestra kvikmyndaspekúlanta eru kvikmyndaverin ekki ánægð með byrjun sumarsins. Engin mynd hefur náð einhverjum hæðum í miðasölu og sumir bíða jafnvel bara eftir næsta sumri. Miklar vonir voru bundnar við kvikmyndir á borð við Prince of Persia, Sex and the City 2 og Schrek Forever. Að ekki sé talað um Clash of the Titans eða Hróa hött en kvikmynd Ridley Scott er sennilega eina myndin sem hefur fengið virkilega góða dóma. En áhorfendur hafa verið fremur áhugalausir. Myndirnar hafa vissulega halað inn nokkrar milljónir - þetta er ekkert stórslys - en ekkert í líkingu við þær sumarmyndir sem hafa einokað kvikmyndasali bíóhúsa. Og þegar menn munu gera sumarið upp er líklegt að Hollywood setji allt á fullt fyrir næsta sumar, gósentíð sína.The Hangover 2 verður frumsýnd næsta sumar en fyrstu timburmennirnir áttu ótrúlega spretti í fyrra.Perri Nemiroff, blaðamaður hjá Cinematical.com, segir sumarið mikil vonbrigði. Hann spáir því að Toy Story 3 muni kannski ná í skottið á sumarsmella-statusnum, eftirspurnin eftir myndinni hefur byggst upp í tíu ár. Nýir áhorfendur, sem hafa horft á fyrri myndirnar tvær á DVD, munu borgar sig inn en sömuleiðis eldri hópurinn. Nemiroff er hins vegar efins um kvikmyndir á borð við The A-Team og Knight and Day með Tom Cruise og Cameron Diaz. Þær myndir verða frumsýndar á næstunni hér á Íslandi. „Myndin hefur vissulega verið að fá fín viðbrögð á forsýningum en ég held að það nægi ekki," skrifar Nemiroff á heimasíðu sinni. Hinar ódýru myndir hafa hins vegar náð alveg ágætis árangri. Þar nægir að nefna Get him to the Greek með Russell Brand í aðalhlutverki. Myndin var tiltölulega ódýr í framleiðslu, svona miðað við allt hitt tæknibrelludótið, og hefur skilað ágætis tekjum í kassann eða 17 milljónum dollara. Nemiroff spyr sig hvort þetta sé sumarið án sumarsmella.Jack Sparrow mætir í fjórðu sjóræningjamyndinni næsta sumar.Því er ekkert óeðlilegt að menn horfi til sumarsins 2011 og velti því fyrir sér hvort stórtíðindi séu í kortunum fyrir það árið. Miðað við listann er ljóst að Hollywood bregst skjótt við; framhaldsmyndir eru enn á ný áberandi. Hugsanlega verða síðustu tvær myndirnar í Harry Potter-flokknum einhverjar mestu metsölumyndir allra tíma. Fyrri myndin verður raunar jólamynd, frumsýnd þann 19. nóvember. En sú seinni verður tekin til sýningar þann 15. júlí.Tinna-mynd Stevens Spielberg verður sömuleiðis frumsýnd sumarið 2011, Captain America og teiknimyndirnar Cars 2 og Kung Fu Panda 2, en fyrri myndirnar möluðu gull. Þá er Transformers 3 einnig væntanleg en Michael Bay hefur væntanlega í hyggju að gera mun betur í þetta skipti.Potterinn mætir 19. nóvember á næsta ári.Ekki má heldur gleyma framhaldsmyndinni The Hangover 2 en fyrstu timburmennirnir áttu ótrúlega spretti í fyrra. Enginn skyldi síðan útiloka fjórðu myndina um Jack Sparrow og sjóræningja Karíbahafsins en síðustu fréttir herma að Megan Fox muni leika hafmeyju í þeirri mynd. Penelope Cruz hefur verið fengin til að hressa aðeins upp á útlitið en hvorki Keiru Knightley né Orlando Bloom hefur verið boðið um borð.
Mest lesið Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Lífið Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Lífið Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Lífið Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden Lífið Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Lífið Seinleg heimför sakbitins Ódysseifs Gagnrýni Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“ Bíó og sjónvarp Daniil gefur út lag með Kodak Black: „Trúi þessu ekki ennþá“ Tónlist Lofar nýrri Ódysseifskviðu fyrir árslok Bíó og sjónvarp „La La Höndin“ úr sögunni Lífið Fleiri fréttir Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Olivia Rodrigo á Íslandi Sjá meira