Bjarnólfur gæti verið íslenski Duncan 30. júlí 2010 06:00 Bjarnólfur spilaði með Scunthorpe United áður en hann gekk til liðs við ÍBV og síðar KR. „
Félagarnir hafa verið að gera grín að þessu og sagt að þetta gæti verið maður sjálfur þarna," segir knattspyrnumaðurinn fyrrverandi Bjarnólfur Lárusson. Auglýsing Ara Eldjárns þar sem hann bregður sér í hlutverk Garys Duncan, fyrrum leikmanns Scunthorpe United í Englandi, hefur slegið í gegn að undanförnu. Bjarnólfur lék einmitt með Scunthorpe fyrir áratug og ber því taugar til félagsins. Hann er ánægður með auglýsingu Ara og alls ekkert móðgaður. „Ég trúði því ekki að það væri Íslendingur að leika þetta því þetta er svo vel gert. Það er líka mjög gaman að sjá gamla heimavöllinn þarna. Hann gerir þetta fagmannlega," segir Bjarnólfur, sem lék 33 leiki með Scunthorpe á sínum tíma. „Ég var þarna eitt tímabil og þetta var virkilega skemmtilegur tími. Ég kom síðan heim eftir þetta." Að sögn Bjarnólfs er grín Ara ekki það fyrsta sem er gert á kostnað Scunthorpe United. „Þetta er alveg nyrst í Englandi. Þetta nafn er sérkennilegt og það hefur verið í söngtextum og öðru slíku. Þeir myndu ekki kippa sér upp við þetta íbúar Scunthorpe. En þetta var mjög vel heppnað hjá honum." Sjálfur hefur Bjarnólfur ekki verið í neinum samskiptum við klúbbinn eftir að hann sagði skilið við hann en hefur þó heimsótt gamla heimavöllinn tvisvar eftir að hann kvaddi Scunthorpe, en liðið leikur núna í ensku 1. deildinni. Bjarnólfur segir að týpur eins og Gary Duncan séu margar í Bretlandi. „Það er svolítið mikið af knattspyrnusérfræðingum þarna úti en þetta er kannski ýktasta týpan." -fb
Mest lesið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Allir komust lifandi út – nema Beethoven Gagnrýni „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið „Við erum öll nóg“ Lífið „Ég ræð ferðinni“ Lífið „Sjálfsvinna er ævistarf“ Lífið „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Lífið Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Lífið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið Fleiri fréttir Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Páskabingó Blökastsins Úr Brúðkaupsþættinum Já yfir í að þjálfa leiðtoga Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Mótefni gegn afmennskun og kúgun Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Hundrað skvísur blómstruðu saman Sjá meira