Lífið

Douglas vongóður um bata

Leikarinn Michael Douglas glímir við krabbamein í hálsi, hann er þó vongóður um að ná fullum bata.
nordicphotos/getty
Leikarinn Michael Douglas glímir við krabbamein í hálsi, hann er þó vongóður um að ná fullum bata. nordicphotos/getty

Leikarinn Michael Douglas greindist með krabbamein í hálsi fyrir skemmstu og hefur nú lokið fyrstu viku sinni í meðferð. Douglas var gestur í spjallþætti Davids Letterman og þar ræddi hann opinskátt um veikindi sín.

Leikarinn sagðist hafa fundið fyrir eymslum í hálsi í byrjun sumars og hafi þá leitað til læknis án árangurs. „Ég ákvað svo að eiga gott sumar með Chatherine og börnunum. Þegar ég kom heim fór ég aftur til læknis og þá kom í ljós að ég var með krabbamein í hálsi," sagði Douglas sem er giftur leikkonunni Catherine Zeta Jones og eiga þau saman börnin Dylan Michaelo og Carys Zeta.

Douglas viðurkenndi að hann óttist að krabbameinið muni dreifa sér en heldur þó í vonina og segir líkurnar á fullum bata vera nokkuð góðar. „Ég er búinn með viku af meðferðinni en lyfin eru sterk og þau brenna hálsinn á manni. Það er erfiðara að kyngja og ég get ekki borðað mat í föstu formi, aðeins fljótandi," segir leikarinn sem á að vera að kynna sjálfstætt framhald kvikmyndarinnar Wall Street um þessar mundir. Douglas óttast að veikindi hans muni setja strik í reikninginn því hann á erfitt með að ferðast milli landa á meðan á meðferð stendur.

Douglas er líklega hvað þekktastur fyrir hlutverk sín í kvikmyndunum Wall Street, Fatal Attraction og Basic Instinct.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.