Lífið

Fjölþreifinn en góður við konur

Tom Jones hefur verið við marga konuna kenndur en hefur líka alltaf komið vel fram við þær.
Tom Jones hefur verið við marga konuna kenndur en hefur líka alltaf komið vel fram við þær.

Kvennaljóminn velski, Tom Jones, segist alltaf hafa komið vel fram við konur, hann hafi til að mynda aldrei hugsað um kvenkynsaðdáendur sína sem „grúppíur“. Jones er annálaður kvennamaður þrátt fyrir að hafa verið giftur Lindu Jones í hálfa öld.

Í viðtali Daily Record segir Tom að hann hafi aldrei hoppað upp í rúm og svo aftur upp úr því eins og honum þóknaðist.

„Ég hef alltaf verið frekar gamaldags í kringum hitt kynið. Ég blóta ekki né segi dónalega brandara. Ég kann vissulega að meta gróft grín en það á ekki við í nærveru konu.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.