Lífið

Þolir ekki fín veitingahús

Hugh Grant. MYND/Cover Media
Hugh Grant. MYND/Cover Media

Leikarinn Hugh Grant, 49 ára, segist hata fín veitingahús og fimm stjörnu þjónustu.

Hugh hefur borðað á fínustu veitingahúsum veraldar en segir að stífar reglurnar geri hann brjálaðan. Hann vill að þjónarnir færi honum mat í stað þess að vesenast með endalausa þjónustu sem gengur út á borðbúnað og servíettur.

„Mér finnst virkilega gaman að smakka vín en ég þoli ekki fín veitingahús. Ég hata þannig veitingastaði. Þar ertu settur í stólinn og servíetta sett á hnéð á þér áður en allt hitt dúlleríið byrjar" sagði Hugh.

„Ég kýs dýr og flott hótel með frábærri herbergisþjónstu," bætti hann við.

Við erum á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.