Fjarlægja forsendu verðmunar 20. júlí 2010 05:00 Póst- og fjarskiptastofnunin vonast til þess að efla samkeppni á farsímamarkaði með breytingu á lúkningargjöldum. Fréttablaðið/AP
Fyrirtæki sem selja farsímaþjónustu þurfa að lækka svokölluð lúkningargjöld sem lögð eru á símtöl milli farsímakerfa um 50 til 67 prósent samkvæmt nýrri ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar (PFS). Lúkningargjöldin lækka í skrefum fram að ársbyrjun 2013 niður í fjórar krónur og verða þá jafnhá hjá öllum farsímafyrirtækjunum. Þá eru upphafsgjöld afnumin. Breytingin er sögð leiða til þess að ein meginforsendan fyrir mismunandi verði á farsímaþjónustu þegar hringt er í annað farsímafélag verði ekki lengur til staðar. Í greiningu PFS kom í ljós að samkeppnisvandamál á markaði farsímaþjónustu hafi fyrst og fremst mátt rekja til þess að farsímafyrirtækið sem réði yfir netinu sem símtalinu var lokið í hafi verið með einokunarstöðu á viðkomandi markaði. „Að mati PFS á sér stað yfirverðlagning á símtölum milli kerfa. Kostnaðinum er þannig velt yfir á þá notendur sem eru tengdir öðrum farsíma- eða fastlínunetum,“ segir í umfjöllun stofnunarinnar. Hæsta lúkningarverðið er nú hjá Nova og IMC/Alterna, eða 12 krónur mínútan. Liv Bergþórsdóttir, framkvæmdastjóri Nova, segir verðið í takt við þann ramma sem PFS hafi heimilað, en það hafi verið hærra hjá nýjum félögum sem byggja hafi þurft upp ný fjarskiptanet og svo smálækkað. Hún fagnar ákvörðun PFS og segir breytinguna í takt við þróun sem eigi sér stað meðal fjarskiptafyrirtækja um heim allan. - óká
Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent „Hún drap börnin“ Erlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Fleiri fréttir Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta niður fjallið Sjá meira