Myndaði Ísland úr hliðarrúðum hópferðarbíla 15. júlí 2010 08:45 Svavar Jónatansson gefur út mynddisk með myndböndum sem gerð eru úr ljósmyndum sem hann tók á ferð sinni um landið. fréttablaðið/daníel
Ljósmyndarinn Svavar Jónatansson tók yfir 200.000 myndir á ferðalögum sínum í kringum landið. Hann setti saman tvö myndbönd úr myndunum og hefur gefið þau út á DVD. „Ég fékk þessa hugmynd upprunalega þegar ég keyrði hringinn í kringum landið á mótorhjóli árið 2004. Á ferðalaginu velti ég fyrir mér myndatöku af landinu og hvernig best væri að framkvæma það. Það var svo ekki fyrr en árið 2007 sem ég sá vöruflutningabíl og datt í hug að nota þá og rútur til að keyra með og taka myndir út um hliðarrúðuna," segir Svavar Jónatansson, 28 ára ljósmyndari. Svavar gefur út DVD disk nú í vikunni sem sýnir vinnu hans síðastliðin 3 ár. Hann ferðaðist með áætlunarbílum um hringveg 1 og tók myndir út um hliðarrúðuna. Það voru fyrirtækin Austfjarðarleið, Flytjandi, Kask, Landflutningar, Netbus, Sba-Norðurleið og Sterna sem leyfðu Svavari að sitja þessi ár á meðan hann safnaði myndunum. Um er að ræða hátt í 200.000 myndir sem teknar eru á mismunandi árstíðum og í mismunandi veðurfari. Af þessum fjölda hefur hann valið um 40.000 myndir sem hann hefur sett saman í tvö 43 mínútna löng myndbönd ásamt aukaefni og gefið út DVD diski. Hann fékk söngvarann Daníel Ágúst Haraldsson til að semja tónverk sem spilast undir þessari myndrænu keyrslu. „Myndböndin fela í sér óslitna keyrslu þar sem árstíðaskiptingar og veðurbreytingar eiga sér stað á fáeinum sekúndum," segir Svavar. Í aukaefninu fá sérvaldir staðir á landinu ítarlegri yfirferð og sýnir Svavar breytileika ýmissa kennileita eftir veðri og birtu og má þar nefna Baulu, Esjuna, Vatnajökul, Hafnarfjall, Eyjafjöll og fleiri staði. Svavar sýndi stækkaðar myndir og hluta úr verkinu á Vetrarhátíðinni á Höfn í Hornafirði en hann vann verkið einmitt þar líka. Í maí var honum, ásamt Daníel Ágústi, boðið að koma með verkið til Winnipeg í Kanada. Verkið fékk mjög góðar viðtökur þar og var þeim sýndur mikill áhugi. Einkum af Vestur-Íslendingum sem þekkja til sögu forfeðra sinna og gátu séð heimahaga þeirra í verkinu. „Það er mjög mikið atriði fyrir mig að sýna verkið hér heima líka og er ég að einbeita mér að því að það verði að raunveruleika," segir Svavar. Framhaldið hjá Svavari er síðan að mynda þá hluta landsins sem eru ekki á hringveginum eins og til að mynda Snæfellsnes og Reykjanes, en um þessar mundir er hann byrjaður á Snæfellsnesinu. Heimasíða verkefnisins er www.inlandoutland.com þar sem hægt er að sjá myndir Svavars og brot úr myndböndunum.
Mest lesið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira